Vill efla löggæsluna og horfa meira til dróna og gervigreindar Birgir Olgeirsson skrifar 16. apríl 2026 18:24 Halla Bergþóra Björnsdóttir mætir til starfa sem ríkislögreglustjóri á mánudag. Vísir/Vilhelm Nýr ríkislögreglustjóri segir að efla þurfi löggæsluna á næstu árum og nýta betur tækninýjungar á borð við dróna og gervigreind. Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem tekur við embættinu mánudaginn 20. apríl, segir fyrstu vikurnar fara í að hitta fólkið, fara yfir verkefnin og meta hvar þurfi helst að styrkja starfsemina.
Dómsmálaráðherra skipaði Höllu í embættið í gær. Hún hefur verið lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu síðan 2020, sem er stærsta lögregluembætti landsins. Halla var ein af fjórum umsækjendum um starfið. Hinir voru Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur, aðstoðarsaksóknari og staðgengill lögreglustjóra, Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, og Grímur Hergeirsson, settur ríkislögreglustjóri. Embættið var auglýst eftir að Sigríður Björk Guðjónsdóttir lét af störfum í nóvember í kjölfar umfjöllunar um 160 milljóna króna greiðslur embættisins til ráðgjafarfyrirtækis, meðal annars vegna verslunarferða í Jysk. Grímur Hergeirsson var í framhaldinu settur ríkislögreglustjóri tímabundið. Halla segir nú mörg stór verkefni bíða hennar í nýju starfi og að hún ætli að byrja á því að setja sig inn í stöðuna, hitta starfsfólkið og fara yfir hverju eigi að halda óbreyttu, hvað þurfi að efla og hverju þurfi að breyta. „Það eru gríðarlega mörg verkefni sem eru þarna mikilvæg og maður fer inn í þau með því að hitta fólkið og skoða stöðuna. Sumt á að vera óbreytt, annað þarf að efla og svo er annað sem þarf að breyta.“ Að hennar sögn er embættið víðfeðmt, með sterkt samhæfingar- og þjónustuhlutverk, auk ábyrgðar á greiningu, almannavörnum og verkefnum á sviði öryggis- og varnarmála. Hún segir fyrstu dagana fara í að forgangsraða og byggja upp skýra mynd af stöðunni. „Maður setur sér 60 daga tímalínu og byrjar að raða verkefnunum upp. Síðan þarf að fara dýpra og vinna þau áfram út frá því.“ Það sem Halla nefnir þó sérstaklega sem svið sem löggæslan þurfi að horfa meira til eru tækninýjungar. Þar nefnir hún bæði dróna og gervigreind sem dæmi um þróun sem geti haft veruleg áhrif á lögreglustarf á næstu árum. „Það er margt að gerast í löggæslu þegar kemur að tækninýjungum og hvernig við getum nýtt þær. Við erum öll að fara út í dróna og svo er spurning hvað gervigreindin mun gera fyrir löggæsluna. Þetta er allt sem við þurfum að skoða og efla okkur í. Þar eru spennandi tímar fram undan.“ Hún segir jafnframt að efla þurfi löggæsluna almennt á næstu árum, þótt hún vilji ekki á þessu stigi draga eitt atriði sérstaklega fram yfir annað. „Við þurfum að efla löggæsluna mjög mikið á næstu árum. Það er erfitt að draga út eitt atriði umfram annað en almennt þarf að styrkja hana.“ Þrátt fyrir að stórt og nýtt embætti taki nú við segist Halla ekki kveðja Hverfisgötuna léttum skrefum. Hún hafi verið ánægð í starfi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu og breytingin sé því bæði ánægjuleg og erfið í senn. „Ég er þakklát fyrir traustið sem ráðherra hefur sýnt mér og hlakka til að takast á við ný verkefni. Um leið er söknuður að fara héðan. Lífið er svolítið súrsætt.“
Greiðslur ríkislögreglustjóra til Intra Lögreglan Mest lesið Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Sjá meira