Stóra sósíalíska skinkumálið Helgi Áss Grétarsson skrifar 16. apríl 2026 07:45 Reykjavíkurborg hefur blæti fyrir stefnum. Væru þær prentaðar allar út yrði það sjálfsagt brot á loftslagsáætlun borgarinnar og Græna Planinu, svo mikill pappír yrði notaður. Nýsamþykkt matarstefna Á fundi borgarstjórnar síðastliðinn þriðjudag var leitt í jörð hver ætti að vera matarstefna Reykjavíkurborgar. Vinna við gerð stefnunnar byggðist á skipunarbréfi stýrihóps sem var upphaflega settur á laggirnar í febrúar 2023. Þrjú ár og rúmlega það, takk fyrir, tók að móta matarstefnu Reykjavíkurborgar! Eins og sumar aðrar stefnur borgarinnar er matarstefnan langorð og lítið fjallað um hvað það kosti fjárhagslega að hrinda henni í framkvæmd. Núverandi meirihluti borgarstjórnar breytti stefnunni á síðustu stundu fyrir fund borgarstjórnar í fyrradag, meðal annars með eftirfarandi hætti: „Unnar kjötvörur falla út af matseðli í leik- og grunnskólum og öðrum þeim starfsstöðum borgarinnar sem þjónusta börn, nema í undantekningatilvikum.“ Þessi breyting vakti fjölmiðlaathygli sem og þær umræður í borgarstjórn sem um breytinguna spunnust. Börn eiga samkvæmt hinni nýju matarstefnu ekki að geta nálgast vörur á borð við kindakæfu og skinku á starfsstöðum borgarinnar, nema í algjörum undatekningartilvikum. Þetta stóra sósíalíska skinkumál, ef mér leyfist að kalla málið það, varpar ljósi á þær ógöngur sem hin dyggðaskreytta forsjárhyggjustefna núverandi meirihluta borgarstjórnar, stendur fyrir. Viljum við áframhaldandi forsjárhyggju? Reykjavíkurborg gefur út margvísleg tilmæli og fyrirmæli, meðal annars um afmælisveislur barna, að starfsmenn í leikskóla Reykjavíkurborgar tryggi að púsluspil séu laus við staðalmyndir og núna um skinkuát í skólum. Vilja borgarbúar halda áfram á þessari braut forsjárhyggju og sósíalisma? Í borgarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi stendur kjósendum til boða að kjósa flokk á borð við Miðflokkinn sem vill draga úr bákni skrifræðis og forsjárhyggju við stjórn Reykjavíkurborgar. Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Reykjavíkurborg hefur blæti fyrir stefnum. Væru þær prentaðar allar út yrði það sjálfsagt brot á loftslagsáætlun borgarinnar og Græna Planinu, svo mikill pappír yrði notaður. Nýsamþykkt matarstefna Á fundi borgarstjórnar síðastliðinn þriðjudag var leitt í jörð hver ætti að vera matarstefna Reykjavíkurborgar. Vinna við gerð stefnunnar byggðist á skipunarbréfi stýrihóps sem var upphaflega settur á laggirnar í febrúar 2023. Þrjú ár og rúmlega það, takk fyrir, tók að móta matarstefnu Reykjavíkurborgar! Eins og sumar aðrar stefnur borgarinnar er matarstefnan langorð og lítið fjallað um hvað það kosti fjárhagslega að hrinda henni í framkvæmd. Núverandi meirihluti borgarstjórnar breytti stefnunni á síðustu stundu fyrir fund borgarstjórnar í fyrradag, meðal annars með eftirfarandi hætti: „Unnar kjötvörur falla út af matseðli í leik- og grunnskólum og öðrum þeim starfsstöðum borgarinnar sem þjónusta börn, nema í undantekningatilvikum.“ Þessi breyting vakti fjölmiðlaathygli sem og þær umræður í borgarstjórn sem um breytinguna spunnust. Börn eiga samkvæmt hinni nýju matarstefnu ekki að geta nálgast vörur á borð við kindakæfu og skinku á starfsstöðum borgarinnar, nema í algjörum undatekningartilvikum. Þetta stóra sósíalíska skinkumál, ef mér leyfist að kalla málið það, varpar ljósi á þær ógöngur sem hin dyggðaskreytta forsjárhyggjustefna núverandi meirihluta borgarstjórnar, stendur fyrir. Viljum við áframhaldandi forsjárhyggju? Reykjavíkurborg gefur út margvísleg tilmæli og fyrirmæli, meðal annars um afmælisveislur barna, að starfsmenn í leikskóla Reykjavíkurborgar tryggi að púsluspil séu laus við staðalmyndir og núna um skinkuát í skólum. Vilja borgarbúar halda áfram á þessari braut forsjárhyggju og sósíalisma? Í borgarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi stendur kjósendum til boða að kjósa flokk á borð við Miðflokkinn sem vill draga úr bákni skrifræðis og forsjárhyggju við stjórn Reykjavíkurborgar. Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar