Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2026 06:56 Víðast verður hægur vindur í öllum landshlutum og gæti hiti skriðið yfir tólf stig. Vísir/Vilhelm Dálítið úrkomusvæði liggur nú yfir austanverðu landinu fram eftir degi og gæti legið þoka eða súld sums staðar eftir að úrkomubakkinn hverfur.
Á vef Veðurstofunnar segir að suðvestantil megi gera ráð fyrir stöku skúrum en líklega verði það Norðvesturland og Vestfirðir sem sjái hvað mest til sólar í dag. „Annars verður vindur hægur í öllum landshlutum og hiti gæti skriðið yfir 12 stig þar sem best lætur en flestir munu upplifa hita á bilinu 5 til 10 stig. Á morgun verður ansi áþekkt veður og í dag, en þó minni líkur á þoku austantil á landinu. Annað kvöld nálgast svo lægð og hvessir af norðaustri samhliða því að skilin koma inná austurhluta landsins. Líkur eru á að sú úrkoma falli sem rigning eða slydda á láglendi en snjókoma til fjalla þannig að hitatölur eru almennt á niðurleið í bili,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða þurrt, en yfirleitt léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 5 til 10 stig. Norðan 3-8 m/s og fer að rigna austanlands seint um kvöldið og kólnar í veðri. Á laugardag: Norðvestan 5-13 m/s og rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi til kvölds og snjókoma til fjalla, en rofar síðan til. Hægari og skýjað með köflum annars staðar. Hiti 1 til 8 stig, mildast suðaustanlands. Á sunnudag: Fremur hæg suðaustlæg átt og lítilsháttar væta, en víða bjartviðri fyrir norðan og austan. Hiti 3 til 8 stig. Á mánudag: Útlit fyrir suðvestanátt með rigningu eða slyddu, en lengst af þurrviðri um landið austanvert. Úrkomulaust seint um kvöldið. Kólnar um tíma. Á þriðjudag og miðvikudag: Vestlæg átt og skýjað við vesturströndina, en annars bjartviðri. Fremur hlýtt.
Veður Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés lávarður hlaut fjórðung atkvæða Erlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Fleiri fréttir Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Sjá meira