Handbolti

Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úr­slita­keppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur í sínu liði í kvöld.
Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæstur í sínu liði í kvöld. EPA/Johan Nilsson

Íslendingaliðin Kadetten Schaffhausen í svissneska karlahandboltanum og Skara í sænska kvennahandboltanum komust bæði í undanúrslit í úrslitakeppnum sínum í kvöld.

Bæði liðin sópuðu andstæðingum sínum út úr átta liða úrslitunum.

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu fjögurra marka sigur á Amicitia Zürich, 31-27, og þar með einvígið 3-0.

Óðinn skoraði úr sjö fyrstu skotum sínum í fyrri hálfleiknum og endaði með níu mörk. Kadetten var 18-11 yfir í hálfleik og því með góð tök allan tímann.

Kadetten varð deildarmeistari en Amicitia Zürich endaði í áttunda sætinu.

Lena Margrét Valdimarsdóttir og félagar í Skara unnu tíu marka sigur á Vasteras, 29-19, og þar með einvígið 3-0. Lena var með tvö mörk og þrjár stoðsendingar í leiknum. Skara stakk af í byrjun og var 18-8 yfir í hálfleik.

Skara endaði í þriðja sæti í deildinni en Vasteras í því sjötta.

Elvar Ásgeirsson og félagar í Ribe-Esbjerg unnu sjö marka útisigur á TMS Ringsted, 35-28, í fallbaráttuhluta úrslitakeppninnar. Elvar var með sex mörk úr aðeins sjö skotum og gaf fimm stoðsendingar að auki. Hann kom að ellefu mörkum og ekkert marka hans kom úr víti.

Ribe-Esbjerg hefur unnið tvo fyrstu leiki sína og er því að byrja þessa úrslitakeppni vel. Ringsted hafði unnið tvo fyrstu leiki sína en tapaði í fyrsta sinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×