Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar 15. apríl 2026 16:52 Sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, sem starfar að málefnum einstaklinga bæði í afplánun og eftir afplánun, tek ég heilshugar undir áhyggjur stjórnar Fangavarðafélags Íslands af yfirfullum fangelsum. Nýleg umfjöllun sýnir að staðan hefur enn versnað og fangelsiskerfið er nú komið að þolmörkum. Frá minni reynslu, eftir samtöl við þátttakendur í Aðstoð eftir afplánun, verkefni á vegum Rauða krossins, er ljóst að þessar aðstæður hafa veruleg áhrif. Þær bitna á aðgengi að þjónustu, skerða réttindi og grafa undan virðingu og öryggi, auk þess að draga úr raunhæfum möguleikum til endurhæfingar og árangursríkrar endurkomu út í samfélagið. Álag, vanlíðan og óvissa eykst hjá einstaklingum sem þegar standa höllum fæti. Í framkvæmd birtist þetta meðal annars þannig að fangaverðir og samfangar eru alltof oft sett í hlutverk umönnunaraðila fyrir einstaklinga með miklar og flóknar þarfir sem ættu fremur heima innan sérhæfðra úrræða. Þá er gripið til einangrunar við aðstæður sem ættu ekki að kalla á slíkar ráðstafanir, þrátt fyrir að einangrunarvist í gæsluvarðhaldi eigi samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum einungis að vera beitt í algjörum undantekningartilvikum og til skamms tíma. Það er sérstaklega mikilvægt að horfast í augu við þá staðreynd að hluti þeirra einstaklinga sem eru vistaðir í fangelsum hérlendis ætti fremur að fá þjónustu annars staðar. Einstaklingar sem glíma við alvarlegan geðrænan eða líkamlegan vanda eiga að fá viðeigandi þjónustu innan heilbrigðiskerfisins, en ekki vera vistaðir í fangelsi. Þegar kerfið bregst að þessu leyti eykst bæði vandi einstaklinganna og álag á fangelsiskerfið í heild. Það hefur jafnframt keðjuverkandi áhrif þar sem fangelsi eru látin bera ábyrgð sem þau eru hvorki hönnuð né búin til að sinna, með neikvæðum afleiðingum fyrir bæði starfsfólk og fólk í afplánun. Þessar aðstæður grafa jafnframt undan langtímaárangri. Árangursrík endurhæfing, sem er eitt af meginmarkmiðum fangavistar, byggir á stöðugleika, stuðningi og aðgengi að viðeigandi þjónustu — skilyrðum sem erfitt er að tryggja við núverandi aðstæður. Þrátt fyrir vilja allra til að bæta fangelsiskerfið virðist þróunin því miður vera í öfuga átt, og staðan nú sú að brotið er á grundvallarmannréttindum og dregið úr getu kerfisins til að uppfylla markmið sín — að stuðla að öryggi, endurhæfingu og þátttöku í samfélaginu að nýju. Það er því brýnt að grípa til samræmdra og tafarlausra aðgerða. Núverandi staða er ekki sjálfbær og krefst skýrra ákvarðana um forgangsröðun, uppbyggingu úrræða og ábyrgð innan kerfisins. Það sem nú vantar er ekki frekari greining, heldur aðgerðir. Höfundur er verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í verkefninu Aðstoð eftir afplánun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fangelsismál Mannréttindi Mest lesið Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir Skoðun Sólveig Anna um stöðu verkafólks innan eða utan ESB Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson,Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar Skoðun Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Eldri maður fer í framboð Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Kærleikur og umburðarlyndi vinstrimanna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Verðgæzlustjóri ríkisins gengur aftur Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Vöndum okkur Ingibjörg Ólöf Isaksen skrifar Skoðun Verðbólgukeppni Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar Skoðun Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vill meirihlutinn í Reykjavíkurborg ekki hlusta á íbúa? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, sem starfar að málefnum einstaklinga bæði í afplánun og eftir afplánun, tek ég heilshugar undir áhyggjur stjórnar Fangavarðafélags Íslands af yfirfullum fangelsum. Nýleg umfjöllun sýnir að staðan hefur enn versnað og fangelsiskerfið er nú komið að þolmörkum. Frá minni reynslu, eftir samtöl við þátttakendur í Aðstoð eftir afplánun, verkefni á vegum Rauða krossins, er ljóst að þessar aðstæður hafa veruleg áhrif. Þær bitna á aðgengi að þjónustu, skerða réttindi og grafa undan virðingu og öryggi, auk þess að draga úr raunhæfum möguleikum til endurhæfingar og árangursríkrar endurkomu út í samfélagið. Álag, vanlíðan og óvissa eykst hjá einstaklingum sem þegar standa höllum fæti. Í framkvæmd birtist þetta meðal annars þannig að fangaverðir og samfangar eru alltof oft sett í hlutverk umönnunaraðila fyrir einstaklinga með miklar og flóknar þarfir sem ættu fremur heima innan sérhæfðra úrræða. Þá er gripið til einangrunar við aðstæður sem ættu ekki að kalla á slíkar ráðstafanir, þrátt fyrir að einangrunarvist í gæsluvarðhaldi eigi samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum einungis að vera beitt í algjörum undantekningartilvikum og til skamms tíma. Það er sérstaklega mikilvægt að horfast í augu við þá staðreynd að hluti þeirra einstaklinga sem eru vistaðir í fangelsum hérlendis ætti fremur að fá þjónustu annars staðar. Einstaklingar sem glíma við alvarlegan geðrænan eða líkamlegan vanda eiga að fá viðeigandi þjónustu innan heilbrigðiskerfisins, en ekki vera vistaðir í fangelsi. Þegar kerfið bregst að þessu leyti eykst bæði vandi einstaklinganna og álag á fangelsiskerfið í heild. Það hefur jafnframt keðjuverkandi áhrif þar sem fangelsi eru látin bera ábyrgð sem þau eru hvorki hönnuð né búin til að sinna, með neikvæðum afleiðingum fyrir bæði starfsfólk og fólk í afplánun. Þessar aðstæður grafa jafnframt undan langtímaárangri. Árangursrík endurhæfing, sem er eitt af meginmarkmiðum fangavistar, byggir á stöðugleika, stuðningi og aðgengi að viðeigandi þjónustu — skilyrðum sem erfitt er að tryggja við núverandi aðstæður. Þrátt fyrir vilja allra til að bæta fangelsiskerfið virðist þróunin því miður vera í öfuga átt, og staðan nú sú að brotið er á grundvallarmannréttindum og dregið úr getu kerfisins til að uppfylla markmið sín — að stuðla að öryggi, endurhæfingu og þátttöku í samfélaginu að nýju. Það er því brýnt að grípa til samræmdra og tafarlausra aðgerða. Núverandi staða er ekki sjálfbær og krefst skýrra ákvarðana um forgangsröðun, uppbyggingu úrræða og ábyrgð innan kerfisins. Það sem nú vantar er ekki frekari greining, heldur aðgerðir. Höfundur er verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í verkefninu Aðstoð eftir afplánun.
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir Skoðun
Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir,María Rut Beck,Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna eru listir lýðheilsumál? Árný Fjóla Ásmundsdóttir,Kristín Lilja Thorlacius,María Arnardóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir Skoðun