Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar 15. apríl 2026 15:31 Þann 10. apríl kynnti ríkisstjórnin aðgerðir gegn verðbólgu. Fram kom hjá ráðherrum að markmið þeirra væri að draga úr áhrifum verðbólgunnar á íslensk heimili og atvinnulíf. Í viðtali í Silfrinu á mánudaginn hvatti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fyrirtæki til að taka þátt í að halda aftur af verðhækkunum í ljósi þess að ríkisstjórnin hygðist lækka verð á eldsneyti. Raunin er hins vegar sú að lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast afar fáum fyrirtækjum. Í öllum virðisaukaskattsskyldum rekstri er eldsneyti innskattað, sem þýðir að fyrirtæki fá virðisaukaskattinn endurgreiddan. Sú breyting sem felst í lækkun skattsins hefur því ekki áhrif á raunverulegan kostnað fyrirtækja, heldur einungis á upphæð innskatts sem fæst endurgreidd frá ríkinu. Af þessum sökum hefur aðgerðin engin raunveruleg áhrif til lækkunar á rekstrarkostnaði, hvort sem um er að ræða farþegaflutninga (að undanskildum almenningssamgöngum og leigubílum), vöruflutninga eða annan rekstur. Um síðustu áramót voru kílómetragjöld lögð á öll ökutæki, samhliða hækkun kolefnisgjalda á eldsneyti. Þær aðgerðir hafa aukið kostnað fyrirtækja. Það hefði því verið nær að grípa til mótvægisaðgerða, svo sem að afnema kílómetragjöld tímabundið eða lækka kolefnisgjöld. Með slíkum aðgerðum hefði ríkisstjórnin raunverulega komið til móts við atvinnulífið og stuðlað að lækkun verðbólgu með því að draga úr kostnaði sem skilar sér að lokum í vöruverði. Eins og staðan er nú er hins vegar líklegra að hækkandi olíuverð leiði til frekari verðhækkana. Höfundur er forstjóri Icelandia. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Þann 10. apríl kynnti ríkisstjórnin aðgerðir gegn verðbólgu. Fram kom hjá ráðherrum að markmið þeirra væri að draga úr áhrifum verðbólgunnar á íslensk heimili og atvinnulíf. Í viðtali í Silfrinu á mánudaginn hvatti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fyrirtæki til að taka þátt í að halda aftur af verðhækkunum í ljósi þess að ríkisstjórnin hygðist lækka verð á eldsneyti. Raunin er hins vegar sú að lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast afar fáum fyrirtækjum. Í öllum virðisaukaskattsskyldum rekstri er eldsneyti innskattað, sem þýðir að fyrirtæki fá virðisaukaskattinn endurgreiddan. Sú breyting sem felst í lækkun skattsins hefur því ekki áhrif á raunverulegan kostnað fyrirtækja, heldur einungis á upphæð innskatts sem fæst endurgreidd frá ríkinu. Af þessum sökum hefur aðgerðin engin raunveruleg áhrif til lækkunar á rekstrarkostnaði, hvort sem um er að ræða farþegaflutninga (að undanskildum almenningssamgöngum og leigubílum), vöruflutninga eða annan rekstur. Um síðustu áramót voru kílómetragjöld lögð á öll ökutæki, samhliða hækkun kolefnisgjalda á eldsneyti. Þær aðgerðir hafa aukið kostnað fyrirtækja. Það hefði því verið nær að grípa til mótvægisaðgerða, svo sem að afnema kílómetragjöld tímabundið eða lækka kolefnisgjöld. Með slíkum aðgerðum hefði ríkisstjórnin raunverulega komið til móts við atvinnulífið og stuðlað að lækkun verðbólgu með því að draga úr kostnaði sem skilar sér að lokum í vöruverði. Eins og staðan er nú er hins vegar líklegra að hækkandi olíuverð leiði til frekari verðhækkana. Höfundur er forstjóri Icelandia.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar