Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Birgir Olgeirsson skrifar 15. apríl 2026 12:07 Lögregla var með talsverða viðveru í Sundahöfn vegna málsins á mánudag. Vísir/Vilhelm Samskiptastjóri Eimskips segir að fyrirtækið líti ætlaðan innflutning á fíkniefnum um borð í Dettifossi mjög alvarlegum augum. Tveir starfsmenn félagsins eru meðal þriggja sem sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar. Lögregla var með talsverða viðveru í Sundahöfn á mánudag vegna rannsóknar á meintu smygli á fíkniefnum til landsins í gámi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips. Alls hafa sex verið handteknir í málinu. Þremur hefur verið sleppt úr haldi en þrír sitja áfram í gæsluvarðhaldi, þar af tveir starfsmenn Eimskips. Verkferlar virkjaðir Harpa Hödd Sigurðardóttir, samskiptastjóri Eimskips, segir fyrirtækið hafa fengið þær upplýsingar að tveir starfsmenn þess hafi verið færðir til skýrslutöku vegna málsins. Hún segir Eimskip líta málið mjög alvarlegum augum, harma að slíkt hafi komið upp og að ákveðnir verkferlar hafi verið virkjaðir innanhúss. Hún segir málið nú alfarið í höndum lögreglu og að Eimskip aðstoði hana eftir óskum. Harpa bendir einnig á að Eimskip geri kröfu um hreint sakavottorð við ráðningar og gangi úr skugga um það í ráðningarferli. Dettifoss sigldi samkvæmt áætlun Að hennar sögn fór lögregla um borð í Dettifoss á mánudag, en aðgerðirnar höfðu ekki áhrif á siglingaáætlun skipsins. Dettifoss fór því úr höfn samkvæmt áætlun. Lögregla sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kom að rannsóknin varðaði innflutning á verulegu magni sterkra fíkniefna. Hún hefur að öðru leyti lítið viljað segja um málið, en heimildir fréttastofu herma að um sé að ræða fíkniefni í vökvaformi. Ekki liggur þó fyrir hvaða efni um ræðir né í hvaða magni. Í gær var jafnframt ráðist í húsleit á heimili eins þeirra sem sæta gæsluvarðhaldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu var þar lagt hald á fjölda muna. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér. Lögreglumál Eimskip Skipaflutningar Smygl Fíkniefnasmygl með Dettifossi Tengdar fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. 14. apríl 2026 19:17 Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira
Lögregla var með talsverða viðveru í Sundahöfn á mánudag vegna rannsóknar á meintu smygli á fíkniefnum til landsins í gámi um borð í Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips. Alls hafa sex verið handteknir í málinu. Þremur hefur verið sleppt úr haldi en þrír sitja áfram í gæsluvarðhaldi, þar af tveir starfsmenn Eimskips. Verkferlar virkjaðir Harpa Hödd Sigurðardóttir, samskiptastjóri Eimskips, segir fyrirtækið hafa fengið þær upplýsingar að tveir starfsmenn þess hafi verið færðir til skýrslutöku vegna málsins. Hún segir Eimskip líta málið mjög alvarlegum augum, harma að slíkt hafi komið upp og að ákveðnir verkferlar hafi verið virkjaðir innanhúss. Hún segir málið nú alfarið í höndum lögreglu og að Eimskip aðstoði hana eftir óskum. Harpa bendir einnig á að Eimskip geri kröfu um hreint sakavottorð við ráðningar og gangi úr skugga um það í ráðningarferli. Dettifoss sigldi samkvæmt áætlun Að hennar sögn fór lögregla um borð í Dettifoss á mánudag, en aðgerðirnar höfðu ekki áhrif á siglingaáætlun skipsins. Dettifoss fór því úr höfn samkvæmt áætlun. Lögregla sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kom að rannsóknin varðaði innflutning á verulegu magni sterkra fíkniefna. Hún hefur að öðru leyti lítið viljað segja um málið, en heimildir fréttastofu herma að um sé að ræða fíkniefni í vökvaformi. Ekki liggur þó fyrir hvaða efni um ræðir né í hvaða magni. Í gær var jafnframt ráðist í húsleit á heimili eins þeirra sem sæta gæsluvarðhaldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu var þar lagt hald á fjölda muna. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá aðgerðum lögreglu? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Lögreglumál Eimskip Skipaflutningar Smygl Fíkniefnasmygl með Dettifossi Tengdar fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. 14. apríl 2026 19:17 Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Sjá meira
Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. 14. apríl 2026 19:17