Körfubolti

„Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
LaMelo gekk glaður af velli eftir að hafa sett sigurskotið niður en hefði átt að henda honum út úr húsi í fyrri hálfleik?
LaMelo gekk glaður af velli eftir að hafa sett sigurskotið niður en hefði átt að henda honum út úr húsi í fyrri hálfleik? Jacob Kupferman/Getty Images

Tímabilið endaði með versta hætti fyrir Bam Adebayo, sem fór meiddur af velli eftir að hafa verið sópað í gólfið af LaMelo Ball. Miami Heat tapaði fyrir Charlotte Hornets með einu stigi og er úr leik í NBA deildinni á þessu tímabili.

Atvikið átti sér stað snemma í öðrum leikhlutanum. LaMelo féll þá til jarðar eftir að hafa keyrt á körfuna en tók Bam Adebayo með sér. Ekkert brot var dæmt, þó LaMelo hafi klárlega fellt hann eins og sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.

Erik Spoelstra, þjálfari Miami Heat, var skiljanlega ósáttur með að missa af velli miðherjann sem skoraði 83 stig í einum leik um daginn. Spoelstra segir um augljóst brot að ræða.

„Mér finnst þetta ekki krúttlega og mér finnst þetta ekki fyndið. Mér finnst þetta heimskulegt brot og hættulegt. Við missum besta leikmanninn okkar út.

Ég er ekki að búa til afsakanir, Hornets spiluðu frábærlega og lokuðu þessum leik. Við fengum okkar tækifæri til að vinna en nýttum þau ekki og það er synd.

Mér finnst þetta bara ekki eiga heima í leiknum, að fella menn svona til jarðar eða vera með einhverja stæla… Það verður einhver dómari að taka eftir þessu. Þeir hefðu átt að henda honum [LaMelo Ball] út úr húsi fyrir þetta,“ sagði Spoelstra á blaðamannafundi eftir leik.

LaMelo Ball baðst afsökunar á atvikinu eftir leik og sagðist ekki hafa gert þetta viljandi.

„Ég biðst afsökunar fyrir þetta. Ég var sleginn í hausinn og vissi varla hvar ég væri þarna. Ég mun athuga með hann, hvort það sé ekki allt í góðu,“ sagði LaMelo.

LaMelo Ball stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa sett niður skot sem vann leikinn fyrir Charlotte Hornets, 127-126 gegn Miami Heat.

Hornets munu mæta tapliðinu úr einvígi Philadelphia 76ers og Orlando Magic í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×