Enski boltinn

Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anthony Taylor hefur hér dæmt af mark Kai Havertz en liðsfélagar Havertz, Ethan Nwaneri og Leandro Trossard, eru ekki sáttir.
Anthony Taylor hefur hér dæmt af mark Kai Havertz en liðsfélagar Havertz, Ethan Nwaneri og Leandro Trossard, eru ekki sáttir. Getty/Alex Pantling

Arsenal fékk ekki góðar fréttir þegar í ljós kom hver verður með flautuna þegar úrslitin gætu mögulega ráðist í baráttunni um enska meistaratitilinn 2026.

Manchester City tekur á móti Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi en þar getur City minnkað forskot Arsenal í þrjú stig og einnig náð betri markatölu.

Arsenal hefur verið í basli í síðustu leikjum og tapaði á móti City í úrslitaleik enska deildabikarsins á dögunum. Liðið tapaði líka á móti Bournemouth á heimavelli um helgina og mætir Sporting í seinni leik átta liða úrslita Meistaradeildarinnar í kvöld.

Á sama tíma hafa City-menn verið afar sannfærandi í sínum leikjum og unnu meðal annars 3-0 útisigur á Chelsea um síðustu helgi.

Það er mikið undir í stórleiknum um næstu helgi þar sem Arsenal getur farið langt með að tryggja sér fyrsta enska meistaratitilinn í 22 ár með sigri.

Liðið er samt á útivelli og nú er komið í ljós að það verða ekki aðeins City-menn sem verða á heimavelli.

Anthony Taylor, dómari leiksins, er fæddur á Stór-Manchester svæðinu en hann er stuðningsmaður Altrincham.

Skytturnar hafa aðeins unnið tvo af síðustu níu leikjum sem hann hefur dæmt hjá þeim. Síðustu tveir hafa endað með jafntefli, 0-0 á móti Liverpool og 1-1 á móti Chelsea.

Taylor dæmdi báða Manchester-slagina á þessu tímabili, United vann seinni leikinn 2-0 en City vann fyrri leikinn 3-0.

Taylor hefur dæmt tvisvar á Ethiad-leikvanginum á þessu tímabili og City vann báða leikina, 3-1 á móti Bournemouth og 3-0 á móti United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×