Handbolti

Díana fer aftur til Fram

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Díana Guðjónsdóttir hefur starfað hjá Haukum undanfarin ár. 
Díana Guðjónsdóttir hefur starfað hjá Haukum undanfarin ár.  VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Díana Guðjónsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem aðstoðarþjálfari Fram í Olís deild kvenna í handbolta. Hún snýr þar með aftur til uppeldisfélagsins eftir að hafa verið hjá Haukum undanfarin úr.

Díana verður aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fram auk þess sem hún mun þjálfa U-lið félagsins og þriðja flokk kvenna í handbolta.

„Díana kemur til starfa með víðtæka reynslu úr íslenskum handbolta, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hún spilaði allan sinn yngri flokka feril með Fram og á að baki farsælan meistaraflokksferil hjá félaginu. Á undanförnum árum hefur hún jafnframt byggt upp sterkan orðstír sem þjálfari með skýra sýn og mikla ástríðu fyrir íþróttinni.

Handbolti og Fram eru Díönu og hennar fjölskyldu nátengd. Faðir hennar, Guðjón Jónsson, þjálfaði Fram um árabil og systur hennar, Guðríður Guðjónsdóttir og Hafdís Guðjónsdóttir, léku og þjálfuðu einnig hjá félaginu í gegnum tíðina,“ segir í tilkynningu Fram.

„Við erum afar ánægð með að fá Díönu til liðs við okkur. Hún býr yfir mikilli þekkingu á leiknum, sterkri leiðtogahæfni og hefur sýnt fram á getu til að þróa leikmenn og lið,“ segir Gísli Freyr Valdórsson, formaður Handknattleiksdeildar Fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×