Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Lovísa Arnardóttir skrifar 14. apríl 2026 09:31 Sigríður Mogensen er sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins. Vísir/Einar Samtök iðnaðarins, SI, segja mikilvægt að íslenskt menntakerfi verði eflt og sömuleiðis aðgengi að erlendum sérfræðimenntuðum mannauði. Samtökin hvetja í nýrri greiningu stjórnvöld einnig til að festa í sessi skattahvata vegna rannsókna og þróunar í tækni- og hugverkaiðnaði. Iðnaðurinn sé einn sá stærsti og hlutfall fjárfestinga hafi aldrei verið hærra.
Verðmætasköpun tækni- og hugverkaiðnaðar er ríflega 440 milljarðar króna og útflutningstekjur greinarinnar 369 milljarðar króna. Útflutningstekjur þessa iðnaðar hafa vaxið hratt á síðustu árum og áttfaldast frá árinu 2008. Á síðasta ári voru útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar í fyrsta sinn hærri en útflutningstekjur sjávarútvegs, eða um 19 prósent af heildarútflutningstekjum Íslands. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins, SI, á stöðu tækni- og hugverkaiðnaðar. Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar frá 2008 til 2024. SI Velta greinarinnar nam nær 700 milljörðum króna sem er tæplega 10 prósent af veltu viðskiptahagkerfisins. Um helmingur af veltu greinarinnar eru útflutningstekjur. Í greininni störfuðu í fyrra ríflega 18 þúsund manns. Skattspor greinarinnar var 186 milljarðar króna árið 2024. Í greiningu SI segir að raunverulegt umfang tækni- og hugverkaiðnaðar sé þó meira en ofangreindar tölur segja til um. Virðiskeðja greinarinnar teygi anga sína langt út fyrir hina eiginlegu starfsemi fyrirtækjanna sem starfa í greininni. Þau kaupi fjölbreytt aðföng og þjónustu af ótal aðilum úr öðrum geirum atvinnulífsins. Ávinningurinn af starfsemi greinarinnar margfaldist þannig. Mörg verðmætustu fyrirtækin innan greinarinnar Undir greinina falla meðal annars fyrirtæki í upplýsingatækni, gagnaversiðnaði og fjarskiptum, tölvuleikjagerð, auk lyfjaframleiðslu, líf- og heilbrigðistækni og annars hátækniiðnaðar. Vöxtur tækni- og hugverkaiðnaðar á síðustu árum hefur aukið fjölbreytni í útflutningi og þannig rennt stoðum undir aukinn stöðugleika í hagkerfinu. Mörg verðmætustu fyrirtækin í íslensku Kauphöllinni eru fyrirtæki innan þessarar greinar. Þar má nefna JBT Marel og Alvotech, sem hafa verið byggð frá grunni á Íslandi, auk annarra öflugra fyrirtækja með rætur hér á landi eins og Emblu Medical, Kerecis, Nox Medical og CCP. Í greiningunni kemur fram að fjárfesting í rannsóknum og þróun (R&Þ) sé undirstaða tækni- og hugverkaiðnaðar. Hugvit og sérhæfður mannauður séu helstu auðlindir greinarinnar. Þannig hafi um 96 prósent af skattahvötum vegna rannsókna og þróunar farið til fyrirtækja í tækni- og hugverkaiðnaði. Skattahvatar í rannsóknum og þróun séu öflugasta tólið í verkfærakistu ríkisins til að stuðla að vexti tækni- og hugverkaiðnaðar og hafi leitt til þess að fyrirtæki í greininni hafa sett aukið fjármagn í rannsóknir og þróun, háframleiðnistörfum hefur fjölgað og útflutningur hefur aukist. Þá kemur fram í greiningunni að fjárfestingar í rannsóknum og þróun hafi aukist mikið á Íslandi á síðustu árum og að þær séu nú, sem hlutfall af landsframleiðslu, yfir meðaltali ESB-ríkja en hins vegar lægri en í Bandaríkjunum. Auknar fjárfestingar í R&Þ sem hlutfall af landsframleiðslu hér á landi á síðustu árum megi helst rekja til þess að fyrirtæki hafa aukið við sitt framlag. Hlutfall fyrirtækja í heildarfjárfestingum í R&Þ hafi þannig aldrei verið hærra frá því að Hagstofa Íslands hóf mælingar á þessum þætti árið 2014. Það nemur nú 75 prósentum af heildarfjárfestingu í R&Þ. Þetta hlutfall er hærra en í ríkjum ESB að jafnaði, en þar er það 67 prósent þótt það sé lægra en í Bandaríkjunum þar sem það er 78 prósent. Skattahvatar verði festir í sessi Í greiningu SI segir að samtökin hafi lagt áherslu á að skattahvatar vegna R&Þ verði festir í sessi og að fyrirkomulagið verði fyrirsjáanlegt. Þannig skapist hvati til aukinna fjárfestinga og geta fyrirtækja til að gera áætlanir til langs tíma. Í greiningunni segir að fyrirtækin í iðnaðinum byggi starfsemi sína að stórum hluta á sérfræðimenntuðu starfsfólki, sérstaklega í STEAM-greinum sem eru vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði. Hlutfall háskólamenntaðs starfsfólks sé mun hærra í greininni en í hagkerfinu almennt. Stjórnendur voru spurðir um háskólamenntun starfsfólks síns. SI Í könnun sem Gallup gerði meðal stjórnenda fyrirtækja í byrjun þessa árs komi til dæmis fram að í 68 prósent fyrirtækja í tækni- og hugverkaiðnaði sé hlutfall háskólamenntaðra 70 prósent eða hærra. Til samanburðar eru einungis 22 prósent fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu með svo hátt hlutfall háskólamenntaðra. Í sömu könnun komi fram að þriðjungur stjórnenda telji skort á starfsfólki og helst skorti háskólamenntaða sérfræðinga. Þá kom einnig fram að væntingar um fjölgun starfsmanna hafi verið mestar meðal stjórnenda í tækni- og hugverkaiðnaði en um 35 prósent töldu að skortur á mannauði myndi standa í vegi fyrir vexti fyrirtækja þeirra næstu fimm árin. Þá var einnig í könnunni fjallað um það íslenskt menntakerfi hafi ekki getað mætt þessari þörf og segir í greiningu SI að það undirstriki mikilvægi þess að aðgengi að erlendum sérfræðimenntuðum mannauði sé gott, jafnframt því sem innlent menntakerfi sé eflt á þessu sviði. Að lokum er í greiningunni farið yfir skattspor fyrirtækja í þessum iðnaði. Þar segir að á árinu 2024 hafi heildarskattspor tækni- og hugverkaiðnaðarins numið 186 milljörðum króna og þröngt skattspor 93 milljörðum króna. Skattspor greinarinnar hafi stækkað á milli ára, en árið 2023 nam heildarskattspor greinarinnar 176 milljörðum króna og þröngt skilgreint skattspor 82 milljörðum króna á verðlagi árs 2024. Þá segir að skattspor greinarinnar sé stórt í samanburði við aðrar útflutningsgreinar, en til samanburðar hafi vítt skilgreint skattspor ferðaþjónustunnar numið 190 milljörðum króna og þröngt skilgreint skattspor hennar 108 milljörðum króna árið 2024. Þröngt skilgreint skattspor fiskveiða og -vinnslu nam tæplega 80 milljörðum króna það ár.
Tækni Stóriðja Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Fleiri fréttir Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Sjá meira