Innlent

Maðurinn sem fannst í Ölfus­á er látinn

Eiður Þór Árnason skrifar
kerti

Maður sem var hífður upp úr Ölfusá á laugardag er látinn. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en tilkynning barst um mann í ánni um fjögurleytið á laugardag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögregluembættinu sem hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið.

Lögregla, björgunarsveitir og þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar fóru á vettvang og var þyrla notuð til að ná manninum upp úr ánni. Í kjölfarið var hann fluttur á slysadeild Landspítalans þar sem hann var úrskurðaður látinn, að sögn lögreglu.

Áður hafði verið greint frá því að sigmaðurinn Landhelgisgæslunnar hafi híft manninn upp úr ánni innan við fimmtán mínútum eftir að lögreglu barst tilkynning um að maður hefði fallið í ána. Stuttur viðbragðstími orsakast af því að þyrlusveitin var á leið á æfingu og gat því strax tekið stefnuna á Selfoss, sagði upplýsingafulltrúi Gæslunnar.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×