Innlent

Guð­mundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins

Árni Sæberg skrifar
Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt sig úr Flokki fólksins.
Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt sig úr Flokki fólksins. Vísir/Vilhelm

Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt sig úr Flokki fólksins og þingflokki flokksins. Hann mun sitja áfram á þingi utan flokka. Hann vísar til persónulegs trúnaðarbrests sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins, sem ástæðu afsagnarinnar.

Þetta tilkynnti Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar dagsins.

„Að vandlega íhuguðu máli hef ég ákveðið að segja skilið við Flokk fólksins. Ég sagði mig úr flokknum í morgun og hef greint forseta Alþingis frá þessari ákvörðun. Ég hyggst áfram gegna störfum sem Alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi en verð nú þingmaður utan flokka. Ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áfram af heilum hug og mun leggja mitt af mörkum við að styðja stjórnina til góðra verka,“ segir í yfirlýsingu frá Guðmundi Inga.

Ástæða þess að hann segir sig úr flokknum á þessum tímapunkti sé trúnaðarbrestur sem varði persónuleg samskipti innan flokksins. Að svo stöddu muni hann ekki tjá sig frekar um þessa ákvörðun.

„Ég vil þakka félögum mínum í Flokki fólksins fyrir samfylgdina og samstarfið á síðustu árum. Saman höfum við náð miklum árangri í veigamiklum baráttumálum og þar vil ég ekki síst nefna kjör öryrkja og aldraðra og áherslur okkar í velferðarmálum. Þeirri baráttu er ekki lokið og ég mun áfram leggja mig allan fram fyrir góðan málstað á Alþingi Íslendinga.“

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×