Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar 13. apríl 2026 10:31 Við viljum öll eiga gott líf og því er það okkur mikilvægt að ganga vel. En hvað er velgengni? Í samtímanum er velgengni oft mæld í tölum: tekjum, eignum og áhrifum. Frá unga aldri er fólki kennt að stefna að þessum viðmiðum, að ná “árangri” sem birtist í sýnilegum ytri gæðum. Þessi skilgreining mótar forgangsröðun einstaklinga og samfélaga og hefur áhrif á heilsu fólks, lífsgæði og ástand jarðarinnar. Þegar velgengni er mæld í peningum, stöðu og völdum skapast stöðug samkeppni og samanburður. Þannig verður lífið meira eins og keppni en ferðalag. Fólk hefur sífellt minni tíma fyrir raunveruleg tengsl, líkamlega hreyfingu og hvíld, þar sem vinna og framleiðni verða aðal markmiðið. Frásagnir fjölmiðla, samfélagsmiðla og auglýsinga endurspegla þessa forgangsröðun og margir upplifa að þeir séu aldrei nóg, ekki nógu ríkir eða nógu áhrifamiklir. Þessar hugmyndir um velgengni geta haft neikvæðar afleiðingar bæði fyrir einstaklinga og jörðina. Þær leiða til streitu, kvíða og kulnunar, þar sem fólk ýtir eigin þörfum, tengslum og líðan til hliðar í leit að ytri viðurkenningu. Á sama tíma eykur þessi hugsun neysluhyggju og ofnýtingu náttúruauðlinda, þar sem hagvöxtur og gróði eru sett ofar sjálfbærni. Afleiðingin er tvíþætt: versnandi andleg og líkamleg heilsa fólks og sífellt meira álag á vistkerfi jarðarinnar. Þetta hefur ekki alltaf verið svona. Í menningu frumbyggja um allan heim hefur velgengni verið skilgreind á annan hátt. Þar er velgengni ekki metin í fjármagni eða völdum, heldur í tengslum, við okkur sjálf, aðra og við náttúruna. Velgengni felst í því að lifa í jafnvægi, að hlúa að samfélaginu og virða umhverfið sem við erum hluti af. Einstaklingurinn er ekki einangruð eining heldur hluti af stærra samhengi þar sem velferð eins tengist velferð allra. Þessi nálgun hefur víðtæk jákvæð áhrif. Hún styður við sterkari félagsleg tengsl, sem er lykilþáttur í hamingju og andlegri heilsu. Hún dregur úr ofneyslu og hvetur til sjálfbærni, þar sem náttúran er ekki aðeins auðlind heldur lífsnauðsynlegur samstarfsaðili. Samfélög sem byggja á þessum gildum eru oft þrautseigari, samheldnari og betur í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Til að endurskilgreina velgengni í nútímasamfélagi þurfum við bæði kerfisbundnar og persónulegar breytingar. Hugmyndafræði velsældarhagkerfa snýst um kerfisbreytingar í samfélaginu þar sem horft er til mælikvarða sem taka tillit til lífsgæða, heilsu og sjálfbærni samhliða hagvexti. Í menntakerfinu mætti leggja meiri áherslu á tilfinningagreind, samkennd og tengsl við náttúru, fremur en einungis árangur í stöðluðum prófum og starfsframa. Fyrirtæki og stofnanir gætu endurmetið árangur út frá velsæld starfsmanna og samfélagsábyrgð en ekki aðeins fjárhagslegum hagnaði. Í einkalífi getur endurskilgreining velgengni falist í því að spyrja sig: Hvað skiptir mig raunverulega máli? Er það tími með fjölskyldu og vinum, góð heilsa, tilgangur í starfi eða tengsl við náttúruna? Með því að setja slík gildi í forgang má byggja líf sem er ekki aðeins “árangursríkt” á pappír, heldur raunverulega innihaldsríkt og gefandi. Að lokum snýst endurskilgreining velgengni ekki um að hafna framförum eða metnaði, heldur að víkka skilning okkar á því hvað felst í því að “ganga vel”. Þegar við færum fókusinn frá auði og völdum yfir í tengsl, jafnvægi og ábyrgð, opnast möguleiki á samfélagi þar sem bæði fólk og jörðin geta dafnað. Slík velgengni er ekki aðeins sjálfbær, hún er forsenda fyrir góðu lífi. Á Velsældarþingi sem haldið verður í Hörpu, 16.-17. apríl verður sjónum beint að því hvernig við getum endurskilgreint velgengni til að bæta velsæld bæði fólks og jarðarinnar. Höfundur er sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Guðrún Guðmundsdóttir Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar