Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson skrifar 13. apríl 2026 08:17 Steinsteypuklumbar og kleinuhringir í stað bílastæða í Miðborg Reykjavíkur. Það er veruleikinn sem blasir við í Austurstræti og nágrenni. Þessu á með réttu að mótmæla en sumir verslunareigendur kjósa að flýja með fótunum. Hægt er að mótmæla á ýmsa vegu, svo sem þegar tvær konur komu sér fyrir í hvalskipum, fóru upp í útsýnistunnur skipanna og neituðu að yfirgefa skipin. Annað dæmið er þegar reistar voru tjaldbúðir á Austurvelli sem hengu þar uppi um langa hríð, Reykjavíkurborg til ævivarandi skammar. Táknmynd forsjárhyggju Dæmin um borgaralega óhlýðni eru mýmörg. Jafnan eru það vinstri-róttæklingar sem standa fyrir þeim. Það var því tilbreyting að oddviti Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar fór um á bíl til að sýna áheyrendum þá steinsteypuklumpa og kleinuhringi sem urðu á vegi hans í Miðborg Reykjavíkur. Myndband sem tók vel innan við eina mínútu að horfa á. Úr þessu myndbandi hefur verið gert töluvert veður þótt bílferð Ara Edwald hafi verið stutt um hina nýlegu göngugötu í Austurstræti. Þetta óvænta framtak oddvita míns varpar ljósi á að það er ekki einkaúrræði vinstri-manna að sýna borgaralega óhlýðni. Áðurnefndir steinsteypuklumbar og kleinuhringir í Miðborg Reykjavíkur eru nefnilega táknmynd forsjárhyggju. Fjarlægja þarf þá táknmynd. Það verður best gert með því að ljá Miðflokknum atkvæði sitt í borgarstjórnarkosningunum hinn 16. maí næstkomandi. Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Steinsteypuklumbar og kleinuhringir í stað bílastæða í Miðborg Reykjavíkur. Það er veruleikinn sem blasir við í Austurstræti og nágrenni. Þessu á með réttu að mótmæla en sumir verslunareigendur kjósa að flýja með fótunum. Hægt er að mótmæla á ýmsa vegu, svo sem þegar tvær konur komu sér fyrir í hvalskipum, fóru upp í útsýnistunnur skipanna og neituðu að yfirgefa skipin. Annað dæmið er þegar reistar voru tjaldbúðir á Austurvelli sem hengu þar uppi um langa hríð, Reykjavíkurborg til ævivarandi skammar. Táknmynd forsjárhyggju Dæmin um borgaralega óhlýðni eru mýmörg. Jafnan eru það vinstri-róttæklingar sem standa fyrir þeim. Það var því tilbreyting að oddviti Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar fór um á bíl til að sýna áheyrendum þá steinsteypuklumpa og kleinuhringi sem urðu á vegi hans í Miðborg Reykjavíkur. Myndband sem tók vel innan við eina mínútu að horfa á. Úr þessu myndbandi hefur verið gert töluvert veður þótt bílferð Ara Edwald hafi verið stutt um hina nýlegu göngugötu í Austurstræti. Þetta óvænta framtak oddvita míns varpar ljósi á að það er ekki einkaúrræði vinstri-manna að sýna borgaralega óhlýðni. Áðurnefndir steinsteypuklumbar og kleinuhringir í Miðborg Reykjavíkur eru nefnilega táknmynd forsjárhyggju. Fjarlægja þarf þá táknmynd. Það verður best gert með því að ljá Miðflokknum atkvæði sitt í borgarstjórnarkosningunum hinn 16. maí næstkomandi. Höfundur er varaborgarfulltrúi og skipar 5. sætið á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar