Tækifæri og áskoranir í samningaviðræðum við ESB Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar 13. apríl 2026 07:31 Undirrituð hefur verið beðin um að svara því hvaða tækifæri og áskoranir fælust í því að hefja samningaviðræður um aðild að Evrópusambandinu (ESB) á ný á ráðstefnunni Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? í Norræna húsinu 14. apríl nk. Samningaviðræður um aðild að ESB fælu fyrst og fremst í sér tækifæri til að útkljá ESB spurninguna til lengri tíma litið með því að gefa íslensku þjóðinni kost á að meta og taka afstöðu til fullkláraðs aðildarsamnings, í stað þess að halda áfram að rífast um hvað okkur myndi bjóðast og hvað ekki. Viðræður gætu svarað því hvort hægt sé að komast að samkomulagi sem félli bæði okkur Íslendingum og aðildarríkjum ESB að geði. Sú ólga sem nú ríkir á alþjóðasviðinu rennir einnig stoðum undir fýsileika aðildarviðræðna á þessum tímapunkti. Þegar þrengir að og óvissa er mikil er mikilvægt fyrir ríki að þekkja vel þá möguleika sem þeim standa til boða. Óháð mögulegri aðild gætu aðildarviðræðurnar sjálfar einnig skapað tækifæri til sterkari tengsla við Evrópusambandið, okkar nánasta samstarfsaðila á alþjóðasviðinu, ásamt því að veita íslenskum stjórnvöldum aukið aðgengi að leiðtogum Evrópuríkja og embættismönnum sambandsins, og auka þannig skilning innan sambandsins á stöðu Íslands í hinu alþjóðlega samhengi. Það eitt og sér gæti haft töluvert gildi. Stærsta áskorunin í mögulegum aðildarviðræðum yrði óneitanlega að ná fram þeim samningsmarkmiðum sem ríkisstjórnin hyggst miða við, byggð á markmiðum í fyrri aðildarviðræðum Íslands og ESB árin 2010-2013. Þar verður á brattann að sækja þar sem almennt er gert ráð fyrir að umsóknarríki aðlagi sig með öllu að regluverki og stefnu ESB. Mörg þeirra hafa þó geta samið um ákveðnar sérlausnir í gegnum tíðina. Einnig er ennþá óljóst nákvæmlega hvert þær stórtæku breytingar sem eiga sér nú stað í alþjóðakerfinu leiða og hvað þær munu þýða fyrir Ísland. Það getur verið óráðlegt að taka stóra ákvörðun, eins og að gerast aðilar að ESB, mitt í storminum ef sú ákvörðun byggir fyrst og fremst á þessari nýjustu þróun heimsmálanna sem ennþá er á mikilli hreyfingu. Því tengt gætu viðbrögð bandarískra stjórnvalda við aðildarumsókn Íslands orðið áskorun fyrir íslensk stjórnvöld, eitthvað sem hefði verið algjörlega óhugsandi fyrir innan við tveimur árum síðan. Annar nýr veruleiki yrði sú áskorun að takast á við þá raunverulegu ógn sem ólögmæt afskipti og upplýsingaóreiða erlendis frá á meðan á aðildarviðræðum stæði væri. Allra stærsta áskorunin, sem jafnframt er mikið tækifæri fyrir íslenskt samfélag, er að tryggja að umræðan á meðan á aðildarviðræðum stæði yrði á uppbyggilegum og málefnalegum nótum. Við verðum að geta útkljáð stór og flókin mál sem geta haft rík áhrif á framtíð Íslands án þess að það setji allt í bál og brand fólks á milli. Óháð því hvaða skoðun hver og einn hefur á mögulegri aðild Íslands að ESB er málefnaleg umræða um Evrópumál, sem og önnur alþjóðamál, gagnleg fyrir okkur sem lýðræðissamfélag. Mjög margt af því sem gerist fyrir utan landsteinana hefur áhrif á okkur hér heima, og það er mikilvægt að við þekkjum sem flesta fleti þessara áhrifaþátta. Hvert og eitt okkar ber ábyrgð þegar kemur að því að tryggja að umræðan um ESB skapi ekki stóraukna spennu meðal þjóðarinnar og hafi neikvæðar afleiðingar á samfélagsheildina. Við höfum orðið vitni af afleiðingum slíkrar óeiningar í nágrannaríkjum okkar á síðustu misserum og víst að flest okkar vilji forðast með öllu að slík þróun verði í íslensku samfélagi. Þar höfum við öll hlutverki að gegna. Góða umræðu! Höfundur er alþjóðastjórnmálafræðingur. Alþjóðamál og staða Íslands í alþjóðakerfinu verða rædd á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins - í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála - sem haldin verður í Norræna húsinu, þriðjudaginn 14. apríl. Skráning á ráðstefnuna fer fram á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar www.ams.hi.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Vilborg Ása Guðjónsdóttir Öryggis- og varnarmál Mest lesið Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar