Golf

Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“

Sindri Sverrisson skrifar
Rory McIlroy átti afar erfiðan dag í gær en er samt annar af efstu mönnum fyrir lokahringinn á Masters.
Rory McIlroy átti afar erfiðan dag í gær en er samt annar af efstu mönnum fyrir lokahringinn á Masters. Getty/Hector Vivas

Rory McIlroy átti afar erfitt uppdráttar í gær, á þriðja hring Masters, og það virtist trufla hann þegar áhorfandi öskraði að honum stórfurðulega skipun í næstsíðasta teighöggi dagsins.

McIlroy lék á einu höggi yfir pari í gær og missti niður sex högga forskotið sem hann hafði eftir fyrstu tvo dagana.

Hann er því jafn Cameron Young á toppnum fyrir lokahringinn í dag, með stóran hóp af kylfingum fast á hæla þeirra.

Það hjálpaði ekki til að McIlroy skyldi slá boltann út í tréin á 17. brautinni í gær, eftir að áhorfandi kallaði á hann í teighögginu: „Færðu mér son minn aftur“. Líklega er línan fengin úr Mel Gibson-myndinni Ransom frá árinu 1996, frekar en að McIlroy hafi eitthvað að gera með týndan son.

Svona hegðun er litin grafalvarlegum augum á mótinu og má ætla að áhorfandanum hafi verið samstundis vísað af Augusta National vellinum. Þá er jafnframt mögulegt að hann eigi yfir höfði sér bann frá mótinu, jafnvel ævilangt.

Lokadagur Masters er í dag og hefst bein útsending á Sýn Sport klukkan 16. McIlroy og Young fara síðastir af stað eða um klukkan 18:25.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×