Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar 12. apríl 2026 11:01 Í gær eftir langa bið kynnti ríkisstjórnin á sérstökum blaðamannafundi aðgerðir sínar til að leggja sitt af mörkum til þess að stemma stigu við verðbólgu í landinu. Sannast sagna hefði verið best að senda út stutta tilkynningu á stjórnarráðsvefnum í staðinn fyrir þetta leikhús. Vissulega er það skref í rétta átt að lækka tímabundið VSK á eldsneyti en ég er enn að klóra mér í höfðinu hvernig fjölgun hleðslustöðva á landinu, nýi frasi ríkisstjórnarinnar „loka hleðslugatinu“, teljist til bráðaaðgerða sem muni bæði lækka verðbólgu og koma til móts við fjölskyldur í landinu sem bera ekki ábyrgð á ástandinu og eru að sligast undan háu vaxtastigi. Ef raunverulegur vilji er til að ná niður verðbólgu þarf að ráðast í víðtækari og markvissari aðgerðir. Ef markmiðið var að styðja þá hópa sem hafa orðið verst úti vegna hás vaxtastigs þá þarf annað og meira til. Aðgerðir á borð við hækkun barnabóta myndu skila sér til þeirra hópa sem erfiðast eiga uppdráttar þessa dagana, það er ungar barnafjölskyldur sem hafa síðustu ár verið að koma yfir sig þaki og eru nú að sligast undan háum vaxtakostnaði, hækkandi matvöruverði og hærri gjaldskrám sem ríkið hefur séð um að leiða áfram, auk þess að þurfa að leggja út í alls konar kostnað sem fylgir því að eiga börn. Með tiltölulega einföldum hætti er hægt að greina hvaða heimili eru í mestri þörf fyrir slíkan stuðning. Næsti frasi En þá komum við að næsta frasa forsætisráðherra sem er „tökum ábyrgð hvert á öðru“ þar sem verkefnum ríkisstjórnarinnar er kastað yfir á sveitarfélög á landinu, án samráðs og án þess að fjármagn fylgi með frá ríkinu. Tillögur sem sveitarfélögin eiga að taka til sín og borga, takk og bless. Lagt er upp með að sveitarfélögin á landinu eigi að taka það á sig að lækka kostnað barnafólks með því að setja þak á leikskólagjöld og 100% systkinaafslátt. Það gleymist gjarnan að það eru sveitarfélögin sem reka og byggja leikskóla. Til að mæta lækkun gjalda þurfa þau því að finna tekjur á móti. Tekjur sem með einhverju móti þarf að sækja í vasa íbúanna. Í þessu samhengi er þó tilvalið að minnast á það að Framsókn í Borgarbyggð hefur nú þegar komið til móts við barnafólk þegar stigið var skerf í átt að gjaldfrjálsari leikskólaþjónustu. En slíkt er ekki sjálfgefið í öllum sveitarfélögum, bara svona kviss bamm búmm og það er ekki forsætisráðherra að leggja það til í einhverjum blekkingarleik til að líta vel út. Ég fagna þó hugmyndum forsætisráðherra um lögfestingu leikskólavistar en þá þarf líka að fylgja með fjármagn frá ríkinu. Fyrst þarf að byrja á samtali við sveitarfélögin áður en lofað er algerri niðurfellingu gjalda. Sama má segja um tillögur um hækkun frístundastyrkja. Þótt markmiðið að auka þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi sé gott, er það aftur sveitarfélögunum sem er ætlað að bera kostnaðinn. Spurningin er hvort ríkið hyggist auka framlög sín til að standa undir þessum auknu skyldum. Við viljum jú öll auka þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi en að lofa að sveitarfélög hækki styrki án þess að fjármagn fylgi með er bara blöff. Já, við þurfum vissulega öll að taka þátt við að ná niður verðbólgunni, en hvernig væri að Samfylkingin færi fram með gott fordæmi í staðinn fyrir að kasta bara ábyrgðinni yfir á aðra. Höfundur skipar 2. sæti á lista Framsóknar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Borgarbyggð Skorradalshreppur Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar