Körfubolti

Sjáðu lygi­lega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur

Sindri Sverrisson skrifar
Kári Jónsson gleymir eflaust aldrei sigurkörfu sinni í kvöld, né nokkur sem viðstaddur var á Hlíðarenda.
Kári Jónsson gleymir eflaust aldrei sigurkörfu sinni í kvöld, né nokkur sem viðstaddur var á Hlíðarenda. Sýn Sport

Valsarinn Kári Jónsson skoraði í kvöld einhverja ótrúlegustu sigurkörfu í sögu úrslitakeppninnar á Íslandi, eftir að Keflavík virtist hafa skorað sigurkörfu á lokasekúndunni.

Það er ekki skrýtið að Gummi Ben hafi misst sig þegar hann lýsti lokakaflanum á Hlíðarenda í kvöld, eins og sjá má í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Ótrúlegur endir á Hlíðarenda

Remy Martin kom Keflavík í 78-76 þegar 0,4 sekúndur voru eftir en sá tími dugði einhvern veginn Kára til að tryggja Val sigurinn með flautuþristi.

Dómarar leiksins þurftu að fara í skjáinn tvisvar á þessari lokasekúndu, fyrst til að meta hvenær boltinn hefði verið farinn í gegnum netið þegar Martin skoraði og svo til að meta hvort að Kári hefði náð að kasta áður en leiktímanum lauk. Sú var þó niðurstaðan.

Þar með eru Valsmenn komnir í 2-1 í frábæru einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta og geta tryggt sig áfram í undanúrslit með sigri í næsta leik í Reykjanesbæ á miðvikudagskvöld.

„Mér líður hrikalega vel,“ sagði Kári eðlilega glaður. „Þetta var svakalegt skot hjá Remy. Ég sagði við Lazar [Nikolic sem sendi boltann á Kára úr innkastinu] fyrir þetta að ég gæti verið opinn í horninu. Þetta var geðveikt,“ sagði Kári.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kári setur flautuþrist í andlitið á Keflvíkingum og hægt að rifja upp fræga körfu hans yfir allan völlinn í einvígi með Haukum gegn Keflavík árið 2018.

„Þetta er kannski svipað á einhvern hátt. Ég hef miklu minni tíma til að hugsa. En þetta er svipað. Algjör snilld,“ sagði Kári áður en hann fór að fagna með félögum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×