Deila um veru bandarískra skipa í Hormússundi Eiður Þór Árnason skrifar 11. apríl 2026 21:15 Skip að sigla í átt að Hormússundi í mars. aP Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. „
Fullyrðingu yfirmanns CENTCOM um að bandarísk skip hafi nálgast og siglt inn í Hormússund er harðlega neitað,“ hefur íranska ríkisfréttastofan Fars eftir talsmanni íranska hersins. Það sé undir herafla íranskra stjórnvalda komið hvort skip fari þar í gegn. BBC greinir frá þessu en fyrr í dag birti miðlæg stjórnstöð Bandaríkjahers (CENTCOM) færslu á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, þar sem fullyrt var að bandarískar hersveitir hefðu hafið „undirbúning að hreinsun tundurdufla í Hormússundi“ og að tvö skip „hefðu siglt um Hormússund ... sem hluti af víðtækara verkefni sem er ætlað að tryggja að sundið sé alveg laust við tundurdufl.“ Fundi fram á nótt Þríhliða viðræður fulltrúa Írans, Bandaríkjanna og Pakistans hófust í Islamabad í dag og hefur BBC heimildir fyrir því að þær muni ná fram yfir miðnætti að staðartíma. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í samfélagsmiðlafærslu á Truth Social fyrr í dag að Hormússund yrði brátt opið fyrir skipaumferð á ný. Þá ítrekaði hann að tóm olíuskip væru á leið til Bandaríkjanna til að „hlaða.“ Forsetinn segist hafa samþykkt að hætta spengjuárásum á Íran með því skilyrði að stjórnvöld í Teheran, höfuðborg Írans, opni Hormússund á ný. Um er að ræða eina fjölförnustu olíuflutningaleið heims og fer um 20 prósent af olíu og fljótandi jarðgasi um sundið í venjulegu árferði. Vegna þessa hefur lokun sundsins haft mikil áhrif á olíuverð og heimshagkerfið en einnig fer stór hluti lykilefna í áburðarframleiðslu um Hormússund. Siglingarleiðin hefur verið meira og minna lokuð síðan Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar. Útlit var fyrir að samkomulag hafi náðst um að opna sundið á þriðjudag en daginn eftir fóru írönsk stjórnvöld fram á Ísraelsher myndi stöðva hernað sinn í Líbanon eftir mannskæðar árásir þar í landi. Síðan þá hefur tvennum sögum farið af því hvort vopnahlé í Líbanon hafi verið hluti af viðræðum Bandaríkjanna og Íran en Ísrael hefur sagt það afdráttarlaust að þær hafi ekki áhrif á árásir þeirra á Hezbollah í Líbanon. Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Guðmundarlundur á bólakafi Innlent Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Innlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Fleiri fréttir Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Sjá meira