Muni ekki fallast á tilmæli til barnafjölskyldna í Grindavík Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. apríl 2026 12:00 Ásrún segir bæjarfulltrúa enn eiga eftir að rýna í skýrslurnar. Grindavíkurnefnd mun í dag kynna skýrslur um endurreisn Grindavíkur og næstu skref. Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur furðar sig á því að tillögur Þórkötlu um endurkaup Grindvíkinga á heimilum sínum verði ekki kynnt samhliða skýrslu nefndarinnar.
Grindavíkurnefndin mun kynna skýrslurnar á blaðamannafundi í Reykjavík klukkan tvö í dag en um er að ræða skýrslu nefndarinnar um rammaáætlun um næstu skref enduruppbyggingu bæjarins auk ráðgjafarskýrslu Alþjóðabankans. Segir í tilkynningu að skýrslurnar hafi þegar verið kynntar ríkisstjórn og bæjaryfirvöldum í Grindavík. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar segist fagna útgáfu skýrslanna tveggja en segir að enn eigi eftir að rýna í þær til hlýtar. „Þessi skýrsla hefur ekki verið kynnt öllum bæjarfulltrúum. Við leggjum þessa skýrslu fyrir í bæjarráði næstkomandi þriðjudag og munum þá rýna hana.“ Hún segist sakna þess að fundurinn hafi ekki verið haldinn í Grindavík, það hefði verið táknrænt. Þá furðar hún sig á því að tillögur að endurkaupaáætlun húsa Grindvíkinga sem nú eru í eigu fasteignafélagsins Þórkötlu hafi ekki verið kynntar samhliða skýrslunum. „Vissulega hefði það verið fínt ef þetta hefði verið kynnt saman en áætlun Þórkötlu er svo sem ekki á verksviði Grindavíkurnefndarinnar. Grindvíkingar eru búnir að bíða þolinmóðir eftir tillögum Þórkötlu og að sjálfsögðu snúast þeirra tillögur mest um endurreisn Grindavíkur.“ Bæjarstjórn hafi verið tjáð að endurkaupaáætlun Þórkötlu verði kynnt á næstunni. Heimildir fréttastofu herma að tilmælum verði beint til barnafjölskyldna í áætluninni um að kaupa ekki hús sín til baka í Grindavík að svo stöddu. Ásrún segir að yrði það raunin myndi það vera algjörlega í trássi við markmið bæjarstjórnar um endurreisn Grindavíkur. „Að sjálfsögðu viljum við hérna samfélag með börnum og við höfum sagt að það er ekkert samfélag án barna. Við erum jafnframt ákveðin í því að stíga varfærin og örugg skref og þannig ætlum við að vinna, en við erum í endurreisn, hér búa börn í dag og þeim mun fjölga og við viljum hlúa eins vel að þeim og við getum.“
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ Sjá meira