Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 11. apríl 2026 07:01 Málflutningur hérlendra Evrópusambandssinna verður sífellt áhugaverðari. Frá hótun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Heimildinni á dögunum um að það hefði „afdrifaríkar afleiðingar“ fyrir þjóðina, ef ekki yrði samþykkt í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði í lok ágúst að hefja umsóknarferli að Evrópusambandinu, yfir í vefsíðu Vilhjálms Þorsteinssonar, kaupsýslumanns og fyrrverandi gjaldkera Samfylkingarinnar, þar sem stuðst er við gervigreind, reyndar fleiri en eitt slíkt forrit, sem tjáði honum meðal annars ranglega nýverið að Írland hefði alls engan her. Harðir Evrópusambandssinnar hafa nú gripið til þess örþrifaráðs að rífast í okkur, sem hyggjumst hafna því í þjóðaratkvæðinu að stefnt verði að inngöngu í Evrópusambandið á nýjan leik, fyrir að ætla að koma í veg fyrir að þeir fái að sjá inngöngusamning. Með öðrum orðum vilja þeir ekki að við, sem erum andsnúin áframhaldandi umsóknarferli að sambandinu, greiðum atkvæði á okkar eigin forsendum heldur þeirra. Þetta er eins og að ætlast til þess að aðrir kysu sama flokk og maður sjálfur svo hann fengi nóg fylgi til þess að hægt yrði að sjá hvort hann stæði við kosningaloforðin sín! Hins vegar hefur gengið mjög illa að fá upp úr Evrópusambandssinnum hvaða mikilvægu upplýsingar þeir telja að verði í mögulegum inngöngusamningi sem við höfum ekki þegar og sem skipti svo miklu máli að fara þurfi í áralangt og kostnaðarsamt umsóknarferli, sem gengur einkum út á aðlögun að öllu regluverki og stjórnsýslu Evrópusambandsins áður en samningur lægi fyrir. Sjálfur hef ég gert margar tilraunir til þess. Talað hefur verið um upplýsingar um vexti, verðbólgu og matvælaverð eftir að inn í sambandið yrði komið sem vitanlega verður ekki að finna í samningnum. Fyrir ekki alls löngu var Þorgerður Katrín þráspurð um þetta í Bítinu á Bylgjunni og endaði með að nefna að það væri gott að hafa símareiki. Sem við höfum þegar í gegnum EES-samninginn! Eiríkur Hjálmarsson, sjálfbærnistjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kvartaði nú síðast í grein á Vísi yfir okkur sem höfum í hyggju að kjósa öðruvísi en hann í þjóðaratkvæðinu. Með því værum við taka „fullveldið“ af honum til þess að sjá samning! Hvað þá með fullveldi okkar sem teljum ábyrgðarlaust að taka fjármuni og tíma frá brýnni málum til þess eins að fá upplýsingar sem þegar liggja fyrir? Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Öryggis- og varnarmál Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar