Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir skrifar 9. apríl 2026 14:02 Á undanförnum árum höfum við orðið vitni að örum tækniframförum sem eru að breyta lífi okkar með margvíslegu móti. Í raun hefur bylting átt sér stað, bylting sem sér ekki fyrir endann á. Hröð þróun gervigreindar mun halda áfram að hafa djúpstæð og víðtæk áhrif á samfélag okkar, þar með talið menntun, störf og lýðræðislega umræðu. Það sem vekur sérstaka athygli er að þeir sem staðið hafa að baki þessari þróun hvetja sjálfir til varfærni. Dario Amodei, forstjóri Anthropic, hefur spáð að áhrif gervigreindar á vinnumarkað komi fram hraðar og af meiri krafti á næstu misserum en flestir geri sér grein fyrir. Á sama tíma hafa frumkvöðlar á borð við Geoffrey Hinton, sem oft er kallaður guðfaðir gervigreindarinnar, varað við því að við séum að þróa kerfi sem við skiljum ekki að fullu sjálf. Í sama streng tekur Tristan Harris, einn af stofnendum almannaheillasamtakanna The Center for Humane Technology. Hann telur að tæknin umbylti ekki aðeins verkferlum okkar heldur einnig hugsun, hegðun og jafnvel sjálfri samfélagsgerðinni. Þessar ábendingar kalla á ígrundun. Við Íslendingar höfum áður tekist á við ýmsar tæknibreytingar, oft með ágætum árangri. En reynslan kennir okkur að þegar ný tækni er þróuð, án ábyrgðar og samtals, geta afleiðingarnar orðið allt aðrar en að er stefnt. Þar nægir að nefna þróun samfélagsmiðla, sem áttu að efla tengsl milli fólks og jafnvel lýðræðislega þátttöku, en hafa jafnframt haft ýmis neikvæð áhrif á andlega líðan almennings, ekki síst barna og unglinga, traust í samfélaginu og opinbera umræðu. Við virðumst eiga í vaxandi erfiðleikum með að eiga yfirvegað samtal um flókin málefni. Umræðan, sem á sér að mestu stað á vefmiðlum og samfélagsmiðlum, verður iðulega hvöss og persónuleg, enda mótuð af hagsmunum sem umbuna þátttakendum fyrir upphrópanir fremur en ígrundun. Skautuð og hatursfull skoðanaskipti hafa áhrif á traust okkar hvert til annars og á grundvöll lýðræðisins. Gervigreindin hefur burði til að magna þessi neikvæðu áhrif enn frekar. Hún getur á andartaki framleitt efni sem virðist trúverðugt en er villandi, dreift óstaðfestum upplýsingum með ógnarhraða og haft áhrif á skoðanir okkar og líðan með hætti sem við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir. Á sama tíma felast í gervigreindinni gríðarleg tækifæri til nýsköpunar, bættrar þjónustu og aukinnar þekkingar. Af þessum ástæðum er brýnt að við sem samfélag mótum okkur skýra stefnu um ábyrga og gagnlega notkun gervigreindar. Slík stefna þarf að ná til menntakerfisins, þar sem við búum komandi kynslóðir undir að lifa og starfa í heimi þar sem gervigreind er ríkur hluti af daglegu lífi. Hún þarf einnig að taka til hugverkaréttar og hagnýtingar á verkum skapandi einstaklinga. Slík stefna þarf einnig að standa vörð um persónuvernd og mannréttindi og síðast en ekki síst að tryggja varðveislu lýðræðisins. Á næstu vikum og mánuðum þarf þjóðin að taka mikilvægar ákvarðanir. Sveitarstjórnarkosningar í maí og kosningar í ágúst um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið kalla á upplýsta, yfirvegaða og heiðarlega umræðu. Það er brýnt að við séum meðvituð um áhrif tækninnar á lýðræðislega ferla og skoðanamyndun og setjum henni skýran ramma þar sem við á. Ísland hefur ýmsa burði til að vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgri nýtingu gervigreindar. Á sterkum grunni menntunar, samfélagslegs trausts og lýðræðishefða getum við mótað framtíð þar sem tækniframfarir styðja við velsæld, sköpun og heilbrigt samfélag. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra; kjörinna fulltrúa, atvinnulífsins, menntastofnana, skapandi greina og almennings. Við sem hér búum berum sameiginlega ábyrgð á því að skapa samfélag þar sem tæknin þjónar manninum – ekki öfugt. Hér er um að ræða stórt og flókið verkefni sem krefst samtals, samstöðu og skýrrar framtíðarsýnar. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Tómasdóttir Gervigreind Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar