Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. apríl 2026 12:02 Magni R. Sigurðsson segir netöryggissveitina fylgjast vel með stöðu mála. Vísir/Vilhelm Íslensk netkerfi eru vel í stakk búin til að takast á við ógnarhraðar breytingar á gervigreind að sögn forsvarsmanns íslensku netöryggissveitarinnar CERT-IS sem segir góðu fréttirnar þær að hún nýtist einnig til góðra verka.
Greint var frá því í hádegisfréttum í gær að nýjasta gervigreindarlíkan bandaríska tæknirisans Anthropic væri umtalsvert öflugra en núverandi tækni og með því hafa fundist yfir þúsund öryggisbrestir og veikleikar í þekktum hugbúnaðarstýrikerfum og vöfrum. Dósent í tölvunarfræði sagði tímaspursmál hvenær tæknin endar í röngum höndum. Líkanið sem ber nafnið Claude Mythos verður ekki gert aðgengilegt almenningi þar sem forsvarsmenn Anthropic telja að afleiðingar þess gætu orðið geigvænlegar. Magni R. Sigurðsson forstöðumaður íslensku netöryggissveitarinnar CERT-IS segir fréttirnar í raun bæði góðar og slæmar. „Og þetta er svo sem ekkert eitthvað sem við erum að sjá nýtt, gervigreindin hefur verið nýtt áður til að finna öryggisveikleika en þarna ertu kominn upp á annað stig með þessari útgáfu í rauninni.“ Forsvarsmenn Anthropic hafa sagt að tækninni verði deilt með fjörutíu tæknirisum til að þeir geti tryggt hugbúnað sinn fyrir mögulegum tölvuárásum. Magni segir það góðar fréttir. Íslendingar séu vel í stakk búnir til að takast á við netógnir jafnvel þó tæknin sé að breytast á ógnarhraða. „Að vissu leyti er þetta bara jákvæð þróun, öryggisveikleikar munu finnast mun hraðar núna og finnast í eldri kerfum sem hafa kannski verið með öryggisholur í mörg ár en ekki fundist áður fyrr.“ Þannig segir Magni að mestu máli skipti að vera á tánum þegar kemur að netöryggi og segir hann netöryggissveitina hafa fylgst af athygli með miklum breytingum á tækninni undanfarin ár, en þar nýtist gervigreind vel. „Það er mikill hraði í þessu og maður sér bara breytingu liggur við á milli vikna hver hraðinn er en við að sjálfsögðu verðum þá að vera á tánum og nýta okkur gervigreindina á þó ábyrgan hátt og reyna að vera skrefinu undan ógnaraðilunum.“
Tölvuárásir Gervigreind Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira