Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. apríl 2026 06:41 Davíð O. Arnar yfirmaður hjartalækninga á Landspítalanum og Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands eru meðal þeirra sem eru undrandi yfir uppsögn Ragnars. Vísir Uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar læknis á Landspítalanum hefur vakið mikla athygli og harða gagnrýni á samfélagsmiðlum. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, og Oddur Steinarsson heimilislæknir og fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins. „
Stjórnendur Landspítala hafa verið opinskáir um það að spítalinn glími við manneklu og að tugir stöðugilda lækna séu ómönnuð. Þetta hefur m.a. valdið spítalanum gríðarlegum kostnaði við yfirvinnu, enda fáar hendur að vinna mörg verk og álagið víða allt of mikið. Þær fréttir að spítalinn hafi sagt upp reyndum og öflugum lækni við þessar aðstæður koma því vægast sagt spánskt fyrir sjónir,“ segir Steinunn á Facebook. „Það er leitun að jákvæðari, áhugasamari, lausnamiðaðri og manneskjulegri lækni en Ragnar Freyr Ingvarsson. Má spítalinn virkilega missa starfskrafta þessa manns? Er staðan raunverulega sú að segja þurfi upp fólki sem vinnur í framlínunni við beina þjónustu við sjúklinga? Þá er illa fyrir okkur komið.“ Oddur segir uppsögn Ragnars „áhugaverða“, hálfu ári eftir að starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins ferðaðist til og um Skandinavíu til að freista þess að fá íslenska lækna til að flytja aftur heim. Margir aðrir hafa tjáð sig í athugasemdum við upphaflega færslu Ragnars, meðal annars Gunnar Örn Jóhannsson, formaður Heilsuklasans, og þingmaðurinn Hildur Sverrisdóttir, sem bæði spyrja einfaldlega „ha?“ „Leiðinlegt að heyra af þessu og þetta virðist vera mjög sérstakt allt saman. Takk fyrir þitt ágæta framlag til spítalans og gangi þér vel á nýjum vettvangi,“ segir Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítalanaum, og þá bendir Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar, á að Ragnar sé bæði sérfræðilæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Aðrir kollegar og skjólstæðingar Ragnars hafa einnig lýst furðu með ákvörðunina.
Heilbrigðismál Landspítalinn Vinnumarkaður Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Sjá meira