Samfélagið treystir á öfluga fráveitu Brynja Ragnarsdóttir skrifar 8. apríl 2026 18:02 Fráveitukerfið er einn af þeim ómissandi innviðum sem flestir taka sem sjálfsögðum hlut í sínu daglegu lífi. Kerfið liggur neðanjarðar eða neðansjávar og við leiðum ekki hugann að því þangað til eitthvað kemur upp á. Eins og þegar vatn flæðir um götur í öfgafullu veðri eða óhreinsað skólp fer í sjó. Þetta ósýnilega kerfi er lykilþáttur í lýðheilsu okkar og þeirri samfélagsþjónustu sem við treystum á á hverjum degi. Hlutverk Veitna er að tryggja að kerfið sé áreiðanlegt, öruggt og tilbúið fyrir áskoranir framtíðarinnar. Með öflugum rekstri, markvissri uppbyggingu og nýrri tækni er verið að leggja grunninn að enn sterkara og sjálfbærara fráveitukerfi fyrir komandi kynslóðir. Forsenda fyrir heilsu og velferð Fráveitan tekur við menguðu vatni, skólpi, frá heimilum og atvinnustarfsemi og tryggir að það safnist ekki upp í nærumhverfi okkar. Hún dregur úr hættu á útbreiðslu sjúkdóma og verndar vatnsból fyrir mengun. Hreinsun á skólpi áður en því er veitt út í sjó kemur í veg fyrir mengun á lífríki sjávar og heldur ströndunum hreinum. Uppbygging kerfisins hefur átt sér stað á löngum tíma. Fram yfir aldamótin 1900 þurftu íbúar í Reykjavík að sætta sig við opnar skólprennur þar sem skólp rann beint í Tjörnina. Ófullnægjandi fráveita skapaði aðstæður þar sem smitsjúkdómar á borð við taugaveiki breiddust út. Á árunum 1906 til 1916 var síðan ráðist í verulegt átak til að holræsavæða Reykjavík og í kjölfarið bötnuðu lífsskilyrði íbúa til muna. Tækni í þágu umhverfis og samfélags Framsýnt fólk lagði grunninn að því kerfi sem við njótum góðs af í dag, oft í baráttu við töluvert mótlæti við að þoka þessu mikilvæga hreinlætismáli í rétta átt. Tekist var á um málefni sem okkur þykja sjálfsögð í dag, til dæmis hvort vatnssalerni ættu að taka við af útikömrum. Á síðustu áratugum hefur þróunin að mestu snúist um aukna hreinsun skólps áður en því er veitt út í sjó sem skiptir miklu máli fyrir verndun lífríkis sjávar og hreinar strandir. Þróunin er jákvæð og endurspeglar aukna vitund um mikilvægi þess að vernda náttúru Íslands og tryggja heilnæmt umhverfi. Ný tækni gerir það að verkum að hægt er að fjarlægja fleiri efni en áður úr skólpi og eykur möguleika á að endurvinna verðmæti úr hreinsiferlinu, svo sem næringarefni í áburð eða gas sem hægt er að nýta sem vistvænan orkugjafa. Stærstu hreinsistöðvar sem Veitur reka eru í Ánanaustum og í Klettagörðum í Reykjavík og þær þjóna um 200.000 íbúum á höfuðborgarsvæðinu. Þar fer fram svokölluð grófhreinsun þar sem rusl, sandur og fita eru fjarlægð áður en skólpinu er veitt til sjávar. Regnvatn og skólp – tvö ólík kerfi Mikilvægur hluti af því að tryggja skilvirkan rekstur fráveitukerfa í dag er að skilja regnvatn frá skólpi, auk þess sem slíkur aðskilnaður er lykilforsenda fyrir aukinni hreinsun skólps í framtíðinni. Í dag berst töluvert magn regnvatns inn í fráveitukerfið og endar í hreinsistöðvunum, án þess að þurfa þá meðhöndlun. Þetta á sérstaklega við í eldri hverfum þar sem fráveitukerfi eru ekki tvöföld -skólpkerfi og regnvatnskrefi. Þegar regnvatn og skólp blandast eykst álag á kerfið, flæði um lagnir og hreinsistöðvar verður meira, og kostnaður við viðhald, uppbyggingu og rekstur hækkar. Til að bregðast við þessu er hægt að aðskilja regnvatn frá skólpi með mismunandi hætti. Annars vegar með aðgreiningu lagnakerfa og hins vegar með því að draga úr því magni regnvatns sem fer yfirhöfuð inn í fráveitukerfið. Blágrænar ofanvatnslausnir eru ein af lykilaðferðum til að ná því markmiði. Blágrænar ofanvatnslausnir Blágrænar ofanvatnslausnir hafa rutt sér til rúms í skipulagi borga. Slíkar lausnir fela í sér að veita regnvatni á náttúrulegan hátt niður í jarðveg eða yfir í græn svæði í stað þess að leiða það allt í lagnir neðanjarðar. Með því má draga úr álagi á fráveitukerfi og þar með rekstrarkostnaði, og skapa grænna og heilnæmara umhverfi. Aðskilnaður þessara tveggja strauma, regnvatns og skólps, með lagnaskiptingu eða blágrænum lausnum, er lykilatriði þegar horft er til frekari hreinsunar í framtíðinni. Vaxandi samfélag, sterkari innviðir Framundan eru mikilvægar fjárfestingar í fráveitunni sem snúa að aukinni þróun í hreinsun og líka vegna fólksfjölgunar. Fólksfjölgun hefur bein áhrif á veitukerfin okkar. Á síðustu 12 árum hefur íbúum landsins fjölgað um 75.000. Það jafngildir samanlögðum fjölda íbúa í Kópavogi og Hafnarfirði. Á næstu 12 árum er áætlað að okkur hafi fjölgað um allt að 110.000, sem er eins og heill Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellsbær. Uppbygging kerfisins þarf að vera í takt við nýjar íbúðabyggðir, vaxandi atvinnulíf og breyttar þarfir samfélagsins. Með markvissum fjárfestingum næstu árin verður tryggt að kerfið verði áfram sterkt, öruggt og tilbúið fyrir framtíðaráskoranir. Þannig er ekki aðeins verið að halda í við vöxtinn, heldur auka áfallaþol kerfisins og skapa grunn að heilbrigðu samfélagi þar sem innviðir styðja við lífsgæði fólks. Höfundur er forstöðumaður vatnsmiðla hjá Veitum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vatn Skólp Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar