Þegar lögbundin réttindi skila sér ekki til barna og ungmenna Fjóla María Ágústsdóttir og Þóra Björg Jónsdóttir skrifa 8. apríl 2026 11:03 Við þurfum að ná betur utan um framkvæmd opinberrar þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur á Íslandi. Ýmis dæmi á undanförnum árum gefa skýrar vísbendingar um kerfislægan vanda sem rekja má til skorts á heildstæðri stefnu og þar af leiðandi heildstæðu skipulagi við framkvæmd þjónustu. Þegar löggjöf kveður á um réttindi en þjónusta er ekki í boði, er óaðgengileg eða mætir ekki þörfum, hverfa þarfirnar ekki. Aðstandendur og starfsfólk reyna þá að brúa bilið, eins langt og það nær. Ef það næst ekki birtist vandinn gjarnan síðar sem flóknari og þyngri þjónustuþörf, og jafnvel dýrari, innan kerfisins. Þetta misræmi á milli ákvæða laga og framkvæmdar þjónustu fær litla umræðu opinberlega og því skortir oft skilning á stöðu þeirra fjölskyldna sem axla auknar byrðar vegna kerfislægra vandamála. Sé þessi staða viðvarandi koma gjarnan fram ný vandamál innan fjölskyldna, svo sem heilsubrestur og skertir tekjuöflunarmöguleikar. Áhrifin eru þó mun víðtækari og ná einnig til starfsfólks innan kerfanna og meðferðar opinberra fjármuna. Ábyrgð á uppbyggingu og virkni kerfa Mikilvægt er að undirstrika að áskoranir í þjónustu við börn og fjölskyldur snúa fyrst og fremst að uppbyggingu og virkni kerfa. Þær eru því á ábyrgð þeirra sem stýra kerfunum en ekki starfsfólksins sem veitir þjónustuna. Sjónarhorn starfsfólks er hins vegar nauðsynlegur og mikilvægur þáttur í heildstæðri greiningu. Víða skortir heildstæða sýn á þjónustu út frá sjónarhorni notenda. Því hefur starfsfólk innan einstakra eininga oft takmörkuð tækifæri til að skoða eigið framlag í samhengi við aðra þætti. Þetta torveldar þróun þjónustu og nýsköpun með heildarárangur og hagsmuni notenda að leiðarljósi. Núverandi staða, þar sem einingar sem í eðli sínu tengjast vinna ekki markvisst saman frá upphafi, leiðir til þess að starfsfólk gerir einfaldlega sitt besta með þeim úrræðum sem til staðar eru. Sú umgjörð er ekki nægilega traust til að tryggja öllum börnum og fjölskyldum lögbundin réttindi, eins og mörg dæmi sanna. Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem veitir þessum hópi þjónustu á rétt á starfsumhverfi sem er hluti af stærri heild og byggir á sameiginlegri sýn. Eðli verkefnanna krefst þess og eingöngu þannig er hægt að hanna kerfi sem skilar árangri. Það þarf að ríkja skilningur á því hvernig kerfið virkar í heild og hvernig einstaka hlutar þess tengjast. Slík umgjörð styður við árangur og vellíðan starfsfólks, sem hefur skýran tilgang og raunhæf úrræði til að sinna starfi sínu vel. Viðbrögð við bráðum vanda og áhrif á stefnumótun Brýnt er að forystufólk í stjórnmálum og stjórnsýslu bregðist við skýrum merkjum um þörf fyrir breytingar. Það á meðal annars við um ákall þeirra einstaklinga og fjölskyldna sem falla á milli kerfa og fá ekki viðeigandi þjónustu, takmörkuð tækifæri starfsfólks til að mæta fjölbreyttum þörfum, tíð langtímaveikindi starfsfólks og brotthvarf úr starfi. Ný þekking gefur einnig tilefni til endurskoðunar. Í því samhengi skal sérstaklega vísað til rannsókna um mikilvægi öruggra tengsla barns við foreldra og aðra umönnunaraðila sem undirstöðu alhliða þroska. Þegar öll umgjörð skólastarfs tekur mið af fjölbreyttum og þekktum þörfum barna skapast bætt skilyrði til náms og félagslegrar virkni. Það dregur úr þörf fyrir sérstakan stuðning og fækkar viðbragðsverkefnum, meðal annars vegna krefjandi hegðunar, bæði innan skóla og í félags- og heilbrigðisþjónustu. Heildstæð greining er forsenda bætts árangurs Kortlagning á framkvæmd þjónustu við börn og fjölskyldur, allt frá upphafi meðgöngu til 18 ára aldurs, gæti verið mikilvægt fyrsta skref til að takast á við þessar áskoranir með heildstæðum hætti. Slík vinna nýtist bæði til að bregðast við bráðum vanda og til að greina tækifæri til forvarna. Hún getur jafnframt orðið mikilvægt innlegg í mótun heildarstefnu í málefnum barna og fjölskyldna, með jákvæðum áhrifum á þróun þjónustunnar og ábyrgari nýtingu opinbers fjár. Við heildstæða greiningu þarf að byggja á viðurkenndum aðferðum sem gera kleift að ná utan um þjónustuna sem heild. Þar skiptir annars vegar máli að beita kerfishönnunarsýn (system design) til að greina samhengi, ábyrgð, tengingar og veikleika milli kerfa og stofnana, fremur en að líta eingöngu til stakra eininga. Hins vegar þarf greiningin að taka mið af sjónarhorni notenda svo upplifun, þarfir og raunveruleg staða barna og fjölskyldna verði leiðarljós í mati á því hvar þjónusta rofnar, tefst eða mætir ekki þörfum. Öflug samvinna ríkis og sveitarfélaga er lykilatriði, bæði til að tryggja börnum og ungmennum lögbundna þjónustu nú þegar og til að draga úr þörf fyrir þyngri og kostnaðarsamari úrræði, samhliða og síðar á lífsleiðinni. Hvernig förum við að? Til þess að breyta stöðunni þurfum við sameiginlegan skilning á undirliggjandi áskorunum. Þær hafa ekki enn fengið heildstæða yfirferð, þrátt fyrir ýmsar greiningar á undanförnum árum, og þar liggur mikil ábyrgð hjá stjórnvöldum. Við getum hafist handa strax með því að ákveða að ekki verði lengur liðið að börn og ungmenni njóti ekki lögbundinna réttinda. Það er fyrsta skrefið. Vinnan í kjölfarið getur ekki farið fram í sílóum. Hún krefst heiðarlegra samtala, dýpri greiningar og víðtækrar samvinnu með bættan heildarárangur að markmiði. Breytt vinnubrögð krefjast þess að við lærum að hugsa og vinna á nýjan hátt. Það er krefjandi á köflum en það er vel gerlegt í styðjandi umhverfi og skilar fljótt bættum árangri. Með hugrekki og samvinnu að leiðarljósi, og með hagsmuni barna og ungmenna í forgrunni, getum við náð árangri. Komum upp úr sílóunum, vinnum skipulega saman og gerum betur! Þóra Björg er lögfræðingur og eigandi STOKKU samvinnustofu. Fjóla María Ágústsdóttir er umbóta-, stefnu og teymaráðgjafi og eigandi Fit4digital. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 20.06.2026 Halldór Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar