Körfubolti

Dallas Mavericks segir ekki til í á­sökunum þjálfara Lakers

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
JJ Redick, þjálfari Los Angeles Lakers, er búinn að missa marga lykilmenn í meiðsli fyrir lokasprettinn í deildarkeppninni.
JJ Redick, þjálfari Los Angeles Lakers, er búinn að missa marga lykilmenn í meiðsli fyrir lokasprettinn í deildarkeppninni. Getty/Allen J. Schaben

Forráðamenn NBA-körfuboltaliðsins Dallas Mavericks mótmæla fullyrðingu JJ Redick, þjálfara Los Angeles Lakers, um að læknateymi þeirra hefði skoðað rangan líkamshluta Austin Reaves þegar leikstjórnandi Lakers fór í segulómun hjá starfsfólki Mavericks um helgina.

„Læknateymi okkar fylgdi stöðluðum myndgreiningarreglum byggðum á þeim upplýsingum sem veittar voru á þeim tíma. Engin villa var gerð í skönnuninni sem framkvæmd var,“ sagði Dallas Mavericks í yfirlýsingu.

Redick sagði að Reaves hefði þurft tvær segulómanir til að greina annars stigs tognun í vinstri skávöðva og kenndi Mavericks um framkvæmd fyrstu skönnunarinnar.

„Ég veit ekki hvar boðleiðirnar liggja hjá myndgreiningardeild Dallas, en þeir skönnuðu rangan stað. Þannig að mistökin voru ekki okkar megin. Við tókum skýrt fram hvað ætti að skanna, en þeir skönnuðu rangan stað,“ sagði Redick.

Talsmaður Lakers neitaði að tjá sig á þriðjudag þegar ESPN spurði um atburðarásina í kringum segulómunina.

Redick breytti um tón þegar hann var beðinn um að útskýra ástæðuna fyrir ásökun sinni áður en L.A. spilaði við Oklahoma City Thunder á þriðjudag.

„Að lokum fengum við myndina sem við þurftum og við erum augljóslega mjög þakklát, því þetta hefur gerst allt tímabilið þegar heimaliðið er okkur innan handar, alveg eins og við værum fyrir þau. Og við ætlum að halda áfram,“ sagði Redick.

Reaves varð fyrir meiðslunum í fyrri hálfleik í 139-96 tapi Lakers gegn Thunder síðastliðinn fimmtudag og kom aftur inn í leikinn, þar sem hann lauk leik með 15 stig, flest í liðinu, á 27 mínútum.

Þrátt fyrir að Lakers hafi ekki tilkynnt neina tímaáætlun fyrir endurkomu Reaves, annað en að útiloka þennan reynda leikmann, sem er á sínu fimmta ári, það sem eftir er af venjulegu leiktímabili, sögðu heimildarmenn Shams Charania hjá ESPN að búist væri við að Reaves yrði frá í fjórar til sex vikur.

L.A. (50 sigrar og 28 töp) er nú í fjórða sæti í Vesturdeildinni þegar fjórir leikir eru eftir. Lakers eru hálfum leik á eftir Denver Nuggets í 3. sæti en hafa vinninginn á Denver eftir að hafa unnið viðureignir liðanna á tímabilinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×