,,En fatlað fólk er svo dýrt!’’ Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar 8. apríl 2026 09:45 Tilvitnanir í líkingu við titil þessarar greinar hafa reglulega komið úr munni sveitarstjórnarfólks um land allt. Við sáum þessa umræðu ríkjandi í kjölfar lögfestingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SSRF). Þá steig hver sveitarstjórnarmaðurinn á fætur öðrum fram og gagnrýndi lögfestinguna, með þeim orðum að sveitarfélögin munu bera hallann af lögfestingunni. Hér gæti ég nefnt nafntogað fólk innan sveitarstjórna. Staðreyndin er sú að síðan 2011 hafa sveitarfélögin borið meginábyrgð á þjónustu við fatlað fólk. Vissulega hafa sveitarfélögin reynt að gera eitthvað til þess að bæta þjónustuna, en deilur um fjármögnun þessarar þjónustu hafa verið háværari heldur en þjónustuveitingin sjálf. Í fyrra var boðað til blaðamannafundar með pompi og prakt þar sem að fjármálaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og Samband sveitarfélaga, tilkynntu um að þau hefðu náð samkomulagi um fjármögnun þjónustu við börn með fjölþættan vanda. ,,Það veit samt enginn hvað flokkast í raun sem fjölþættur vandi’’, sagði fulltrúi samtaka sem berjast fyrir réttindum veikra barna við mig í heimsókn til þeirra. Á meðan er gapandi úrræðaleysi gagnvart þessum málaflokki, sem að margir finna á eigin skinni, en aðrir heyra bara í fréttum. Ekkert gerist, við höldum bara áfram að tala. Hvað gerir þá átján ára gutti sem langar í betra samfélag? Fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar ákvað ég að hafa samband við félagasamtök fatlaðs fólks til þess að grennslast um hvernig staðan er í málaflokknum, þá einkum í mínu sveitarfélagi - Hafnarfjarðarbæ. Ég hafði samband við: Umhyggju, Þroskahjálp, Einstök börn, Félag lesblindra, ADHD samtökin, og Einhverfusamtökin. Öll samtökin nema ein svöruðu. Auk þess óskaði ég eftir gögnum frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, en þau gögn hafa enn ekki borist. Þá sankaði ég að mér ýmsum gögnum úr opinberum gagnasöfnum og átti samtal við leikmennina. Niðurstaðan úr þessari óformlegu rannsókn minni er sú að mjög margt má gera betur. Hvar liggja vandamálin? Athugasemdir beindust m.a. á skorti á sértækum skólaúrræðum fyrir langveik börn (í mörgum tilfellum er einungis Klettaskóli sem er í boði), takmörkuðum stuðningi við fjölskyldur (þ.m.t. systkini), lélega akstursþjónustu, lélegt upplýsingaflæði o.s.frv. Mikið af þeim vandamálum sem eru í dag orsakast að mestu af þekkingarleysi. Fræðsla er lítil sem engin og ætlast er til þess að nýtt starfsfólk spjari sig með lágmarksupplýsingum. Þá var einnig bent á aðgengi og möguleikana sem liggja þar. Getur lýsingin verið að trufla? Sumum þykja gömlu flúrljósin ekki þægileg (sérstaklega skynsegin fólki). Vantar betri klefaaðstöðu? Í allar sundlaugar í Hafnarfirði vantar m.a. fjölskylduklefa, sem gætu nýst fjölskyldum langveikra barna sem að treysta sér ekki ein í kynjaskipta klefa. Mitt í þessu öllu liggja síðan möguleikarnir á innleiðingu sólblómabandsins, sem að mörg félagasamtök hafa skráð sig í. Til þess þarf víðtæka vitundarvakningu sem að öll þurfa að taka þátt í. Ræðum við fólkið Í heimsókn minni til ónefndra samtaka var mér sagt að ég væri fyrsti frambjóðandinn í Hafnarfirði sem ræddi við samtökin. Þetta var mitt í allri stefnumótunarvinnu. Stjórnmálamenn verða að viðurkenna að þeir vita ekki allt, þó að þau séu með bunka af tölum fyrir framan sig. Til þess að átta sig á stöðunni þarf að eiga samtalið, samtalið við fólkið. Í grein sem ég skrifaði og birti á Vísi fyrr í mánuðinum, hét ég því að leggja mitt af mörkum í því að skila betri þjónustu fyrir skynsegin og langveikt fólk. Ég er ekki í baráttusæti í komandi kosningum, ég er í tuttugasta sæti á tuttugu og tveggja manna lista. En ég ætla svo sannarlega að gera mitt besta, ég kom með mitt innlegg í stefnumótunarvinnu og hlakka síðan til að taka samtalið, bæði fyrir og eftir kosningar. Höfundur er langveikur nemi á einhverfurófi og frambjóðandi á lista Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson Skoðun Skoðun Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar