Gervigreind og fullveldi Linda Heimisdóttir og Vilhjálmur Þorsteinsson skrifa 8. apríl 2026 08:33 Í grein Loga Einarssonar, ráðherra menningar, nýsköpunar og háskóla, hér á Vísi þann 25. mars sl. kom fram að samtöl séu í gangi við leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki um þróun íslensks gervigreindarmállíkans. Samstarfið miðar að því að sérþjálfa risamállíkan sem hýst yrði á Íslandi. Sérstaklega yrði hugað að íslenskri tungu og menningu við þjálfun þess. Áformin hafa verið kennd við „fullveldisgervigreind“ (e. Sovereign AI) og eiga sér hliðstæðu í öðrum löndum sem hafa áhyggjur af öryggi sínu og sjálfstæði gagnvart erlendum tæknirisum, einkum bandarískum. Við undirrituð, sem höfum starfað um árabil við þróun máltækni og gervigreindar fyrir íslensku hjá fyrirtækinu Miðeind, fögnum þessum áformum. Við teljum þau vera í þágu þjóðaröryggis og geta jafnframt, ef vel tekst til, orðið lyftistöng fyrir innlenda þekkingu og færni á þessu mikilvæga og hraðvaxandi sviði. Þá teljum við vera töluverð tækifæri til að bæta þjónustu og hagræða, bæði hjá hinu opinbera og á einkamarkaðnum, ef innlend gervigreind sem er fær í íslensku máli og þekkir til íslenskrar menningar og sögu er í boði á hagstæðum kjörum. Við bendum á að betri sátt gæti náðst um framlög texta og annars efnis til þjálfunar slíks líkans á innlendum forsendum, fremur en til erlendra tæknifyrirtækja. Þá má minna á að ekki er gefið að erlendum líkönum muni fara fram í íslensku. Dæmi eru um að þekktum líkönum hafi ítrekað farið aftur milli útgáfa, samkvæmt mæliprófum Miðeindar. Loks má nefna að notkun lokaðra erlendra gervigreindarlíkana (svo sem ChatGPT, Claude, Gemini og Grok) er ekki ókeypis. Úr landi fer þegar allnokkur „gervigreindarskattur“ sem fyrirséð er að muni hækka hratt á komandi árum með aukinni notkun gervigreindarverkfæra. Með „fullveldisgervigreind“ er ekki stefnt að því að búa til líkan sem yrði samkeppnisfært á öllum sviðum við leiðandi erlend líkön; slíkt markmið er óraunhæft. Eftir sem áður má reikna með að forritarar noti til dæmis Claude Opus eða álíka líkön til að hjálpa sér að smíða hugbúnað, og að almenningur hafi ChatGPT-app í símanum hjá sér. En það er raunhæft markmið að íslenskt líkan, hýst í öruggu umhverfi innanlands, gæti orðið besta fáanlega líkanið hvað það varðar að skilja og mynda íslenskan texta, og að hafa staðgóða þekkingu á íslenskri menningu, lögum, gildum og sögu. Þeir eiginleikar nægja til að gera líkanið að besta fáanlega kosti fyrir fjölbreytt viðföng, til dæmis í stjórnsýslu og í heilbrigðis-, mennta- og dómskerfi, að ekki sé minnst á verkefni á sviði öryggis- og varnarmála. Sum viðföng máltækni og gervigreindar eru og verða viðkvæms eðlis. Þar er unnið með trúnaðarupplýsingar á borð við sjúkraskrár og endurrit yfirheyrslna lögreglu. Þá skiptir máli að meðferð og vinnsla gagna sé að öllu leyti í samræmi við Evrópureglur um persónuvernd og gagnaöryggi – og uppfylli okkar eigin kröfur um að viðkvæm gögn séu geymd og unnin innan landsteinanna en ekki send um sæstrengi til vinnslu víða um lönd. Að okkar mati er farsælasta leiðin til uppbyggingar fullveldisgervigreindar sú að finna birgja og samstarfsaðila í verkefnið sem uppfyllir m.a. eftirfarandi skilyrði: Birginn hefur þegar á að skipa stóru, vel samkeppnisfæru og nægilega öflugu risamállíkani, helst undir opnum hugbúnaðarleyfum, sem notað yrði sem grunnur að íslenskri lausn. Grunnlíkanið sé þjálfað í samræmi við evrópskar kröfur og endurspegli evrópsk gildi. Birginn sé reiðubúinn að vinna með innlendum aðilum að áframhaldandi forþjálfun líkansins á íslenskum gögnum. Hafa ber í huga að þjálfun stórra mállíkana með hundruð milljarða stika er sambland af vísindum og list og alls ekki auðvelt viðfangsefni. Teymi með reynslu af slíku eru ekki á hverju strái á heimsvísu (og mjög upptekin, þar sem þau finnast). Birginn sé reiðubúinn að þjálfa og aðstoða innlend teymi þannig að þau geti í framhaldinu bjargað sér sjálf um áframhaldandi þróun, sérþjálfun og viðhald. Birginn geti lagt til vélbúnað til forþjálfunar, enda er þjálfun stórs líkans afar reikniaflsfrek, og aðgangur að miklu reikniafli getur verið torsóttur. Ekki er nauðsynlegt að slík þjálfun eigi sér stað innanlands. Unnt sé að keyra líkanið innanlands í eins mörgum eintökum og þurfa þykir, einnig í sérþjálfuðum útgáfum, svo sem innan dómskerfis eða á sviði öryggis og varna. Það athugist að mun umfangsminni vélbúnað þarf til að fínþjálfa eða keyra fullþjálfað líkan í notkun en til að forþjálfa það. Mögulegt sé, og gert ráð fyrir frá upphafi, að uppfæra fínþjálfuð og sérþjálfuð líkön þegar ný og endurbætt grunnlíkön koma út frá birgja, án þess að nauðsynlega þurfi að hefja fínþjálfun frá byrjunarreit. Búið sé þannig um hnúta að jafnvel þótt hætt yrði samstarfi við birgjann af einhverjum ástæðum yrði hægt að halda áfram með líkanið sjálfstætt, eða skipta um grunnlíkan með lágmarks fyrirhöfn. Það er kostur ef birginn getur auk líkansins sjálfs lagt fram ýmis konar stoðhugbúnað, svo sem þjálfunarumgjörð, spjallumhverfi, þjón fyrir forritaskil með tilheyrandi öryggis- og aðgangsstjórnun, o.s.frv. Einnig ef birginn getur útvegað fjölhátta líkön ef og þegar þurfa þykir, svo sem fyrir talgreiningu og -gervingu, ljóslestur og myndvinnslu. Þá er mikilvægt að birginn lúti ekki lögsögu ríkja sem óttast er að gætu – leynt eða ljóst – skert eða lokað á vinnslu mikilvægra íslenskra gervigreindarviðfanga með valdboði ef upp kæmu viðsjár á alþjóðavettvangi. Ef það tekst að uppfylla þessi skilyrði, sem við teljum vel mögulegt, standa allar líkur til þess að verkefni um íslenska fullveldisgervigreind skili þeim árangri sem að er stefnt: bættri þjónustu, hagræðingu, stuðningi við íslenska tungu og menningu, uppbyggingu þekkingar á lykilsviði með afleiddum nýsköpunaráhrifum, og auknu öryggi á viðsjárverðum tímum. Höfundar eru framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Miðeindar ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar