Segir að frændi sinn sé algjör hálfviti inni á vellinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2026 11:33 Frændurnir Hilmar Pétursson og Kári Jónsson gefa ekkert eftir inni á vellinum og þeir spila nú um sæti í undanúrslitunum næstu vikuna. Vísir/Pawel Keflvíkingurinn Hilmar Pétursson var valinn Just Wingin' It maður leiksins af Bónus Körfuboltakvöldi eftir að Keflavíkingar fóru af Hlíðarenda í gær með heimavallarréttinn með í för. Hilmar fagnaði þar sigri á móti frænda sínum Kára Jónssyni.
Hilmar skoraði ellefu stig í leiknum og stal þremur boltum en Keflavik vann þær mínútur sem hann spilaði með sextán stigum. „Við byrjuðum mjög flatir og skoruðum bara tíu stig í fyrsta leikhluta. Ef þú ætlar að byrja svona þá verður bara mjög erfitt að koma og klára leikinn. Við vorum bara allt annað lið í seinni hálfleik og þetta var bara mjög gaman,“ sagði Hilmar. Tók aukafund út á miðjunni Daníel Guðna Guðmundssyni þjálfara Keflavíkurliðsins tókst heldur betur að kveikja á sínum mönnum eftir erfiðan fyrri hálfleik. Hann hélt meðal annars einhvern aukafund úti á miðjunni rétt áður en seinni hálfleikurinn fór af stað. Klippa: Hilmar Péturs um sigurinn, liðsfélagana og frænda sinn „Hann sagði við okkur: Strákar, fokkit, ef þið eruð opnir, þá bara skjótið. Ekki vera eitthvað að hika, þið bara haldið áfram að skjóta. Við vorum með einn þrist í hálfleik og við vorum einn af sex. Það þarf bara þannig hugarfar á móti svona sterku liði,“ sagði Hilmar. Keflavíkurliðið skoraði sex þriggja stiga körfur í seinni hálfleik. Hilmar vitnaði í heimspeki föður síns um að ekkert opið þriggja stiga skot væri slæmt skot. Stefán Árni spurði hann líka út í atvik þegar hann tók innkast með því að kasta boltanum í bak mótherja. Kannski líka mjög heimskulegt „Þetta er mjög töff en þetta er kannski líka mjög heimskulegt. En það heppnaðist og þeir áttu eina villu eftir að gefa. Ég var bara heppinn þarna,“ sagði Hilmar. Hilmar talaði einnig um liðsfélaga sína eins og Remy Martin og Mirza Bulic. Stefán Árni spurði líka um það hvernig hafi verið að vinna frænda sinn Kára Jónsson sem var með 13 stig og 7 stoðsendingar fyrir Valsmenn en tapaði líka sjö boltum. Með montréttinn „Bara mjög gott. Við unnum þá náttúrulega í bikarnum sem var enn þá betra. Þessi gæi, sorrí Kári, en hann er algjör hálfviti ef maður er að spila á móti honum. Hann er alltaf góður þegar hann er að keppa á móti mér eða Sigga bróður,“ sagði Hilmar. En er páskaboð fram undan? „Já örugglega hjá ömmu og þá er vonandi montrétturinn hjá mér,“ sagði Hilmar. Það má horfa á allt spjallið við Hilmar hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Körfuboltakvöld Keflavík ÍF Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Ólympíumeistari féll á lyfjaprófi í þriðja sinn Sport Neitar að róa með Normönnum Fótbolti Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti Fleiri fréttir Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Sjá meira