Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 2. apríl 2026 18:19 Pam Bondi var sett í embætti dómsmálaráðherra í fyrra. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra. Todd Blanche, staðgengill hennar, tekur við af henni.
Trump greinir frá þessu í færslu á eigin samfélagsmiðli. Þar hrósar hann Bondi í hástert og segir hana hafa staðið sig vel en nú sé komið að því að hún færi sig um set og hefji störf á einkamarkaði. Bandaríski miðillinn CNN hefur eftir heimildarmönnum að Trump hafi átt í viðræðum við bandamenn sína um að víkja Bondi úr embætti undanfarna daga. Í gær hafi hann átt fund með Bondi og sagt henni að búa sig undir starfslok af því að henni yrði skipt út innan tíðar. Henni hafi þó verið sagt að henni yrði boðið annað embætti, mögulega dómaraembætti. Trump hefur að undanförnu lýst yfir óánægju með ýmislegt í störfum Bondi, til að mynda meðhöndlun ráðuneytisins á Epstein-skjölunum og skort á rannsóknum á pólitískum andstæðingum hans. Starfslok Bondi eru þau þriðju í Trump-stjórninni á hans seinna kjörtímabili, en fyrr í mánuðinum lét Kristi Noem, fyrrverandi heimavarnaráðherra, af störfum. Þá var Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafa, bolað úr störfum í fyrra. Þó að Todd Blanche taki við embætti Bondi tímabundið hefur CNN eftir heimildum að Trump íhugi að skipa Lee Zeldin, forstjóra Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna, í embættið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir áköll um slíkt eftir að ráðuneyti hennar sagði að listi af viðskiptavinum Jeffrey Epsteins væri ekki til. En í febrúar sagði hún reyndar að listinn lægi á skrifborðinu sínu. 15. júlí 2025 23:57 Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, er sögð hafa tilkynnt Donald Trump Bandaríkjaforseta að nafn hans væri að finna nokkrum sinnum í skjölum tengdum kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein. 23. júlí 2025 23:15 Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna hefur nú tilnefnt Pam Bondi sem næsta dómsmálaráðherra Bandaríkjanna eftir að hinn umdeildi Matt Gaetz hrökk úr skaftinu í gær. 22. nóvember 2024 07:16 Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Fleiri fréttir Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjá meira
Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir áköll um slíkt eftir að ráðuneyti hennar sagði að listi af viðskiptavinum Jeffrey Epsteins væri ekki til. En í febrúar sagði hún reyndar að listinn lægi á skrifborðinu sínu. 15. júlí 2025 23:57
Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, er sögð hafa tilkynnt Donald Trump Bandaríkjaforseta að nafn hans væri að finna nokkrum sinnum í skjölum tengdum kynferðisbrotamanninum Jeffrey Epstein. 23. júlí 2025 23:15
Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna hefur nú tilnefnt Pam Bondi sem næsta dómsmálaráðherra Bandaríkjanna eftir að hinn umdeildi Matt Gaetz hrökk úr skaftinu í gær. 22. nóvember 2024 07:16