Bændur, páskalamb og sjókvíaeldi Jóhann Helgi Stefánsson skrifar 2. apríl 2026 13:32 Margir bændur reiða sig að verulegu leyti á tekjur af sölu veiðileyfa. Það er engum blöðum um það að fletta að tekjur af hefðbundnum landbúnaði einum og sér hafa víða ekki verið nægar til að standa undir blómlegum búrekstri, nýliðun og eðlilegri uppbyggingu í sveitum landsins. Tekjur af veiðirétti hafa því skipt sköpum fyrir fjölmörg bú og heilu byggðirnar. Þess vegna skýtur það skökku við að þessi orð skuli koma frá þingmanni í grein sem bitist á Vísi á Skírdag: https://www.visir.is/.../202.../faeduoryggi-byrjar-her-heima Sama þingmanni sem hefur hingað til hefur stutt opið sjókvíaeldi við Íslandsstrendur. Það er einmitt sá iðnaður sem er meðal stærstu áhættuþátta fyrir framtíðartekjur dreifbýlisins. Opið sjókvíaeldi, ásamt ákveðnum ákvæðum í frumvarpi um lagareldi sem er nú hjá Alþingi, mun óhjákvæmilega grafa undan ímynd íslenskra veiðiáa og veikja þar með verðmæti veiðileyfa. Þegar ímyndin skaðast og traust minnkar, lækkar verðið sem bændur fá fyrir veiðina á sínum jörðum. Það er því bein ógn við mikilvægan tekjustofn í sveitum landsins. Ef við viljum raunverulega styðja við blómlegan landbúnað, sjálfbæra innlenda matvælaframleiðslu, íslenskt páskalamb og öflugt mannlíf í dreifbýli, þá gerum við það ekki með því að veikja aðra stoð atvinnu og verðmætasköpunar í sveitum. Við gerum það með framsýnum búvörusamningum, sterkum rekstrarskilyrðum fyrir bændur og með því að hemja vöxt opins sjókvíaeldis. Núgildandi frumvarp um sjókvíaeldi gerir það ekki. Verði það samþykkt óbreytt mun það valda villtum laxastofnum miklum skaða vegna erfðablöndunar, lúsafaraldra og mengunar. Slík þróun bitnar ekki aðeins á náttúrunni heldur líka á afkomu bænda, byggðunum sjálfum og framtíð landsbyggðarinnar. Það er auðvelt að tala um fæðuöryggi, nýliðun og blómlegar sveitir. En þá verður að horfast í augu við að opið sjókvíaeldi grefur undan einum mikilvægasta tekjustofni bænda víða um land: tekjum af veiðirétti. Sá sem vill raunverulega standa með íslenskum landbúnaði og dreifbýli getur ekki um leið stutt atvinnugrein og lagaramma sem ógna villtum laxastofnum, skaða ímynd íslenskra veiðiáa og draga úr verðmætasköpun í sveitum landsins. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjókvíaeldi Landbúnaður Páskar Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Margir bændur reiða sig að verulegu leyti á tekjur af sölu veiðileyfa. Það er engum blöðum um það að fletta að tekjur af hefðbundnum landbúnaði einum og sér hafa víða ekki verið nægar til að standa undir blómlegum búrekstri, nýliðun og eðlilegri uppbyggingu í sveitum landsins. Tekjur af veiðirétti hafa því skipt sköpum fyrir fjölmörg bú og heilu byggðirnar. Þess vegna skýtur það skökku við að þessi orð skuli koma frá þingmanni í grein sem bitist á Vísi á Skírdag: https://www.visir.is/.../202.../faeduoryggi-byrjar-her-heima Sama þingmanni sem hefur hingað til hefur stutt opið sjókvíaeldi við Íslandsstrendur. Það er einmitt sá iðnaður sem er meðal stærstu áhættuþátta fyrir framtíðartekjur dreifbýlisins. Opið sjókvíaeldi, ásamt ákveðnum ákvæðum í frumvarpi um lagareldi sem er nú hjá Alþingi, mun óhjákvæmilega grafa undan ímynd íslenskra veiðiáa og veikja þar með verðmæti veiðileyfa. Þegar ímyndin skaðast og traust minnkar, lækkar verðið sem bændur fá fyrir veiðina á sínum jörðum. Það er því bein ógn við mikilvægan tekjustofn í sveitum landsins. Ef við viljum raunverulega styðja við blómlegan landbúnað, sjálfbæra innlenda matvælaframleiðslu, íslenskt páskalamb og öflugt mannlíf í dreifbýli, þá gerum við það ekki með því að veikja aðra stoð atvinnu og verðmætasköpunar í sveitum. Við gerum það með framsýnum búvörusamningum, sterkum rekstrarskilyrðum fyrir bændur og með því að hemja vöxt opins sjókvíaeldis. Núgildandi frumvarp um sjókvíaeldi gerir það ekki. Verði það samþykkt óbreytt mun það valda villtum laxastofnum miklum skaða vegna erfðablöndunar, lúsafaraldra og mengunar. Slík þróun bitnar ekki aðeins á náttúrunni heldur líka á afkomu bænda, byggðunum sjálfum og framtíð landsbyggðarinnar. Það er auðvelt að tala um fæðuöryggi, nýliðun og blómlegar sveitir. En þá verður að horfast í augu við að opið sjókvíaeldi grefur undan einum mikilvægasta tekjustofni bænda víða um land: tekjum af veiðirétti. Sá sem vill raunverulega standa með íslenskum landbúnaði og dreifbýli getur ekki um leið stutt atvinnugrein og lagaramma sem ógna villtum laxastofnum, skaða ímynd íslenskra veiðiáa og draga úr verðmætasköpun í sveitum landsins. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar