„Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. apríl 2026 22:02 Jakob fylgdist vel með því hvort einhverjir myndu láta sjá sig í Laugardalshöllinni en Vísir hafði greint frá því að þar myndi Bubbi Morthens halda opna hljómsveitaræfingu. Vísir/Sigurjón Fréttir um boltaland fyrir fullorðna, nýtt flugfélag og bleikt vatn voru á meðal aprílgabba sem birtust á miðlum í dag. Einn hugmyndasmiðanna segir lykilatriði að láta fólk hlaupa apríl og skilur ekkert í þeim sem kjafta frá skemmtilegu sprelli.
Hugmyndasmiðir aprílgabba voru einstaklega frumlegir í dag. Ikea greindi frá opnun Storlands, boltalands fyrir fullorðna og Nói Siríus sagði að málshættir í boði gervigreindar hefðu óvart ratað í páskaegg fyrirtækisins. Vefmiðillinn Akureyri.net greindi frá fyrirætlunum eigenda Skógarbaðanna um stofnun flugfélagsins Forest Air. Aprílgöbbin voru fjölbreytt og skemmtileg þetta árið.Vísir Þá leit fréttamaður við í Bíó Paradís í von um að hitta þar sænska leikarann Alexander Skarsgård en greip í tómt. Víkurfréttir sögðu að vegna losunar steinefna í Svartsengi gæti vatn á Suðurnesjum otekið á sig bleikan lit og aprílgabb Morgunblaðsins um niðurfellingu kílómetragjalds hafði þær afleiðingar að skatturinn þurfti að bregðast við með yfirlýsingu. Í morgun greindi Vísir frá opinni hljómsveitaræfingu kóngsins sjálfs, Bubba Morthens í Laugardalshöll. Það aprílgabb sá yfirgabbari fréttastofunnar, Jakob Bjarnar um. Jakob, hvernig gekk að gabba landann? „Það gekk svona kannski ekki alltof vel. Ég feilaði mig á því að þetta er svolítið opin leið að koma að höllinni, kanna aðstæður og sneika sig svo út. Ég reiknaði ekki með því,“ segir Jakob. Aðalatriði aprílgabba sé að láta fólk hlaupa apríl og Jakob skilur ekki þá sem kjafta frá og koma upp um herlegheitin. „Hvernig í ósköpunum á maður að geta verið með aprílgabb sem virkar ef það er búið að segja frá því í radíóinu að það sé 1. apríl? Krakkar hættið þessu, slakið á með þetta. Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag.“
Aprílgabb Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira