„Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. apríl 2026 15:47 Hermann sér ekki fyrir sér að Remy Martin geti farið fyrir Keflavíkurliðinu í úrslitakeppninni. Samsett/Vísir Valur og Keflavík hefja í kvöld einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta, en þar eigast við liðin sem höfnuðu í fjórða og fimmta sæti deildarkeppninnar. Rýnt var í komandi einvígi í Bónus Körfuboltakvöldi. „
Þetta verður alvöru sería. Valur – Keflavík. Þessi lið mættust síðast í úrslitakeppninni 1992,“ segir þáttastjórnandinn Stefán Árni Pálsson. „Þetta eru lið sem eru bæði á skrýtnum stað komandi inn í þessa úrslitakeppni,“ bætir hann við. Valur hefur sætt eilítilli gagnrýni og gengið liðsins verið misjafnt í vetur þrátt fyrir augljós gæði. Keflavík er þá einnig sagt á furðulegum stað. „Þú veist hvað þú ert að fara að fá frá Valsliðinu, meira heldur en Keflavík. Keflavík getur verið eitt besta sóknarlið deildarinnar en svo geta þeir verið mjög skrýtnir. Svo veistu aldrei hvort með Keflavík hvort Remy mæti eða mæti ekki. Þetta er mjög undarlegt. Maður getur eiginlega ekkert sagt til um Keflavík í dag,“ segir Sævar Sævarsson í þættinum. Remy Martin hefur tæplega getað spilað á sjö daga fresti fyrir Keflavíkurliðið síðan hann mætti aftur til leiks á Reykjanesinu. Menn eiga erfitt með að sjá að hann hafi mikið að segja fyrir liðið þegar farið er að leika á þriggja daga fresti í úrslitakeppninni. „Þetta er rosalega erfitt fyrir Keflavík að standa í þessu. Hann var tekinn með það í huga að hann ætti að koma liðinu á næsta stig, vitandi hvernig hann var hérna áður. Það var áhætta að gera þetta og sú áhætta hefur ekki skilað sér. En þegar hann er on þá er hann einn sá allra besti og skemmtilegasti leikmaður að horfa á. En ég held að Keflavík sé ekkert að fara að fá frá honum í úrslitakeppninni. Bara sorry, ég sé þetta ekki gerast,“ segir Hermann Hauksson. Klippa: Körfuboltakvöld um einvígi Vals og Keflavíkur Woods getur ráðið úrslitum Keyshawn Woods getur ráðið úrslitum en hann kom til Vals á miðju tímabili. Hann kom inn af krafti og hann þekkir að spila á þessu stigi, fyrir titlinum, sem hann hefur gert með Tindastóli. „Það er rosalega mikill plús að vera með leikmann sem þekkir aðstæður, þekkir íslensku úrslitakeppnina. Þegar hann kom í Val byrjaði hann að setja risastór skot og vinna leiki. Maður hugsaði að þetta væri enn eitt púslið í þetta lið. Ef maður horfir yfir byrjunarliðið hjá Val er þetta rosalega sterkt lið, stór nöfn og mikil reynsla. Valsarar eru stórhættulegt lið. Það finnst þeim allir vera í einhverri lægð en svo er sú lægð eitthvað sem skiptir engu máli núna því að það er að byrja nýtt mót,“ segir Hermann. Töluvert fleira kom fram í umræðunni um einvígið sem sjá má í spilaranum að neðan. Leikur Vals og Keflavíkur er klukkan 19:30 í kvöld en bein útsending hefst klukkan 19:00 á Sýn Sport Ísland. Allir fjórir leikir gærkvöldsins og kvöldsins í kvöld verða gerðir upp í Bónus Körfuboltakvöldi eftir leikinn á Hlíðarenda klukkan 21:15.
Bónus-deild karla Keflavík ÍF Valur Körfuboltakvöld Mest lesið Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Körfubolti Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Enski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Körfubolti „Frábært að fá Martin aftur“ Körfubolti Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Fleiri fréttir „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Sjá meira