Handbolti

Skór Rúnars upp í hillu

Valur Páll Eiríksson skrifar
Rúnar Kárason lætur gott heita af harpixinu.
Rúnar Kárason lætur gott heita af harpixinu. Vísir/Arnar

Rúnar Kárason er hættur handboltaiðkun. Þetta tilkynnti Rúnar á samfélagsmiðlum síðdegis.

Rúnar tilkynnir um tíðindin eftir að Fram féll úr leik í úrslitakeppni Olís-deildar karla vegna taps fyrir FH í gær. Rúnar er 37 ára gömul hægri skytta og teigir ferill hans sig víða.

Rúnar hóf ferilinn þar sem honum lauk, með Fram, en fór 21 árs gamall í atvinnumennsku til Fuchse Berlín í Þýskalandi. Hann lék einnig með Bergischer, Grosswallstadt, Rhein-Neckar Löwen og Hannover Burgdorf á tíu árum þar í landi, frá 2009 til 2018.

Hann fór í kjölfarið til Ribe-Esbjerg og lék þar til 2021 þegar hann sneri heim til að leika með ÍBV.

Hann varð Íslandsmeistari með ÍBV árið 2023 og fór í kjölfarið eftir það tímabil heim í Fram. Þar varð hann Íslandsmeistari í fyrra áður en kom að síðasta handboltatímabilinu í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×