Bylting í bráðaþjónustunni? Unnur Ósk Stefánsdóttir skrifar 31. mars 2026 09:32 Fyrir nokkru kom framkvæmdastjóri á Landspítalanum í fjölmiðla til að kynna nýja og það sem hann kallaði „byltingarkennda“ breytingu á bráðaþjónustu spítalans. Við bráðalæknar tókum þessum hugmyndum fagnandi í upphafi – eins og öllu því sem gæti bætt þjónustu við okkar sjúklinga og bætt starfsumhverfi okkar. Þegar farið var að rýna í þessar tillögur runnu hins vegar á okkur tvær grímur. Vandinn er ekki fólkið sem kemur – heldur stoppar Öllum spjótum þessa nýja fyrirkomulags virðist beint að aðflæði sjúklinga, það er að segja þeim sem leita til okkar daglega. Yfirstjórnin sér fyrir sér farvegi þar sem hægt verður að beina sjúklingum frá bráðalæknum og annað, oft án allrar aðkomu okkar sérgreinar. Þetta teljum við bráðalæknar mjög varhugavert. Vandamál bráðamóttökunnar og bráðaþjónustunnar hefur nefnilega ekkert með aðflæðið að gera. Vandamálið er fráflæðið. Við þorum að fullyrða að bráðamóttakan myndi virka mjög vel, biðtími yrði stuttur og þjónustan margfalt skilvirkari ef ekki væri fyrir þá 40 til 60 sjúklinga sem liggja að jafnaði á göngum bráðadeildarinnar í bið eftir plássi á öðrum deildum. Þetta eru innlagðir sjúklingar sem komast hvorki lönd né strönd. Vegna þessa höfum við hreinlega ekkert pláss til að sinna okkar eigin bráðasjúklingum. Þjónustan við þetta innlagða fólk fer því fram á göngum eða í gluggalausum herbergjum bráðamóttökunnar. Þjónustan er oftast veitt úr fjarlægð af læknum af öðrum deildum og unnin af bráðahjúkrunarfræðingum sem eru vanir að sinna bráðveikum og slösuðum – ekki langvarandi meðferð í rýmum sem engan veginn eru gerð fyrir dvöl í margar klukkustundir eða sólarhringa. Reikningsdæmi sem gengur ekki upp Nú hefur Félag bráðalækna verið að benda á þennan vanda í yfir áratug. Okkur er því illskiljanlegt hvernig þetta nýja fyrirkomulag eigi að laga ástandið. Nú á að rísa bráðalegudeild með 20 rúmum, en hvernig eiga 20 rúm að rúma þá 40 til 60 sjúklinga sem bíða hjá okkur daglega? Þetta er reikningsdæmi sem einfaldlega gengur ekki upp. Sömuleiðis var keimlík tilraun gerð fyrir nokkrum árum. Hún féll um sjálfa sig einmitt vegna þessa sama fráflæðisvanda sem spítalinn glímir enn við. Það þarf fleira að koma til á sama tíma en umrædd legudeild og aukning á göngudeilarþjónustu ef eitthvað ái raunverulega að breytast. Alvöru ákvarðanir – ekki sýndarmennska Fyrir tæpum tveimur mánuðum héldu starfsmenn bráðamóttökunnar fund þar sem fram komu skýrar kröfur um úrbætur. Síðan þá hefur ríkt algjör þögn af hálfu framkvæmdastjórnar Landspítalans. Við getum ekki séð að neitt hafi gerst og álaginu engan veginn verið dreift. Það er gríðarlega óábyrgt að stjórnendur Landspítalans tali um byltingu í fjölmiðlum á sama tíma og þeir hunsa fólkið á gólfinu. Okkur virðist þetta vera tilraun til að bæta ímynd spítalans út á við án þess að koma með raunverulegar lausnir. Það er lofað umbótum án þess nokkur innistæða sé fyrir því. Við fögnum breytingum til hins betra, en áherslurnar verða að vera réttar. Okkur hefur fundist ríkja algjört stjórnleysi. Allir benda á hvern annan og enginn virðist geta tekið ákvarðanir. Vandinn er stór en hann þarf að leysa í skrefum. Við þurfum ekki loforð um framtíðarsýn sem stenst ekki skoðun. Við þurfum aðgerðir strax. Þetta snýst nefnilega ekki um okkur sem starfsmenn, heldur fólkið sem við sinnum: Sjúklingana okkar og aðstandendur þeirra. Þetta eru oft erfiðustu stundirnar í lífi fólks. Fólk neyðist til að segja viðkvæma sjúkrasögu sína, afklæðast og undirgangast rannsóknir á miðjum gangi – og liggja svo þar í flóðljósabirtu klukkustundum eða sólahringum saman. Það á að vera sjálfsögð krafa að við getum sinnt okkar sjúklingum af umhyggju, öryggi og fagmennsku, rétt eins og einkunnarorð spítalans segja til um. En eins og staðan er í dag er það gjörsamlega ómögulegt. Höfundur er bráðalæknir og formaður Félags bráðalækna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Landspítalinn Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira