Úkraínskir drónar brotlentu í Finnlandi Samúel Karl Ólason skrifar 30. mars 2026 11:20 Úkraínskir lögreglumenn að störfum nærri því þar sem drónarnir brotlentu. AP/Sasu Järnstedt Tveir sjálfsprengidrónar, sem taldir eru frá Úkraínu, féllu til jarðar í Finnlandi í gærmorgun. Annar sprakk við lendingu en hinn mun hafa verið sprengdur í loft upp af sérfræðingum í morgun. Engan sakaði en talið er að drónarnir hafi verið notaðir til árása í Rússlandi, nærri landamærum Finnlands.
Drónarnir brotlentu nærri borginni Kouvola í Finnlandi, sem er í um tvö hundruð kílómetra fjarlægð frá Helsinki. Úkraínumenn hafa verið að gera drónaárásir á olíuinnviði nærri Pétursborg sem er þar skammt frá. Meðal annars hafa Úkraínumenn gert drónaárásir á höfnina í Ust-Luga, sem er nánast beint suður af Kouvola, hinum megin við Finnlandsflóa. Líklegt er að samband við drónana hafi rofnað vegna rafrænna truflana frá varnarkerfum Rússa og þess vegna hafi þeir farið af leið og endað í Finnlandi. Rússneskir sjálfsprengidrónar hafa ítrekað brotlent með sambærilegum hætti í nágrannaríkjum Úkraínu. Finnska ríkisútvarpið segir finnska flugherinn hafa staðfest að að minnsta kosti annar drónanna hafi verið af gerðinni AN-196 en það eru sjálfsprengidrónar frá Úkraínu. Þeir eru tiltölulega stórir og eru notaðir til árása á skotmörk djúpt í Rússlandi. Drægni drónanna er talin vera um 1.200 kílómetrar eða jafnvel meira. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Finnlandi og er búist við að rannsóknin muni taka einhverjar vikur. YLE segir lögregluna ekki hafa viljað segja hvort einhverjir séu grunaðir um verknaðinn Alexender Stubb, forseti Finnlands, segir náið fylgst með ástandinu en segir Finna ekki standa frammi fyrir hernaðarlegri ógn. This morning, drones have strayed into Finnish territory. One of the drones has been confirmed to be Ukrainian in origin.I want to emphasize that there is no military threat to Finland.Our authorities reacted to the situation immediately. I thank the authorities for their…— Alexander Stubb (@alexstubb) March 29, 2026 Stubb og Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, töluðu saman í morgun. Selenskí sagði frá samtalinu í morgun og sagði að þeir hefðu rætt öryggismál sín á milli. Hann segir ekkert um það hvort þeir hafi talað um drónana. I spoke with President of Finland @AlexStubb. It is important that all of us in Europe coordinate in a substantive way. That is exactly what we are doing with Alex. I briefed him on the meetings and negotiations in the Middle East and the Gulf region that I had in recent days.…— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) March 30, 2026
Finnland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Pútín sló öll met Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Innlent Fleiri fréttir Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Sjá meira