„Dagsskipun kerfisins“ Helgi Áss Grétarsson skrifar 29. mars 2026 23:42 „Sjálfstæðisflokkurinn fjármagnar kosningaloforð Samfylkingarinnar“ er blaðagrein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, sem birt var í Morgunblaðinu 28. september 2019. Núna, tæpum átta árum síðar, hafa margir spádómar Sigmundar ræst: „Borgarlínan ber öll merki innviðaverkefnis sem mun reynast eilífðarvandamál, kostnaðurinn verður margfalt meiri en lagt er upp með, árangurinn mun lakari en gert er ráð fyrir og rekstrarkostnaðurinn eilífðarvandamál fyrir skattgreiðendur.“ „Fleira fólk verður ráðið í verkefnið, fleiri einstaklingar og stofnanir munu hafa hag af því að það haldi áfram og kerfisræðið mun ráða för. Haldið verður áfram á sömu braut, á sömu teinum á sömu línu.“ Spádómur þáverandi borgarstjóra í maí 2022 Í Fréttablaðinu sáluga, degi fyrir kjördag borgarstjórnarkosninga í maí 2022, skrifaði þáverandi borgarstjóri Samfylkingarinnar: „Á næsta kjörtímabili mun Borgarlínan komast til framkvæmda og Miklabraut fer í stokk – ef núverandi stefna heldur áfram. Annars verður stórt stopp, og umferðin, umhverfið og loftslagsmálin líða fyrir.“ Ekkert af þessu hefur staðist, þótt sami meirihluti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, með nýjum fylgihnöttum, hafi reynt eins og rjúpan við staurinn að fylgja eftir sömu stefnunni um borgarlínuna á yfirstandandi kjörtímabili. Ábendingar Vegagerðarinnar frá september 2024 Í byrjun september 2024 gaf Vegagerðin út fréttatilkynningu sem ber heitið „Virðum staðreyndir varðandi Samgöngusáttmálann“. Þessi tilkynning lýsir vinnubrögðunum við gerð Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í september 2019 og að Vegagerðin hafi ekki komið nálægt því verklagi. Með þessu vildi Vegagerðin, réttilega, firra sig ábyrgð. Stofnunin var þó óbeint með tilkynningunni að staðfesta að bæði framkvæmdahraði og framkvæmdakostnaður Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafi í upphafi verið stórkostlega vanáætlaður. Vinnubrögðin við gerð sáttmálans haustið 2019 voru því til þess fallin að blekkja almenning. Blekkingarleiknum ber að linna Miðflokkurinn hefur ávallt staðið gegn þeim blekkingarleik sem fylgt hefur borgarlínuverkefninu. Sem fyrr mun flokkurinn núna í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna berjast fyrir því að komast undan „Dagsskipun kerfisins“, svo notuð séu lokaorð í áðurnefndri grein Sigmundar Davíðs frá lok september 2019. Hendum ekki góðum peningum á eftir slæmum. Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Mest lesið Er ekki komið nóg af þessum mannréttindum? Olga Margrét Cilia Skoðun Opið bréf til Ingu Sæland Skoðun „Dagsskipun kerfisins“ Helgi Áss Grétarsson Skoðun Ertu íslenskuvinur? Védís Ragnheiðardóttir Skoðun Ógnir núna ekkert á við áhættu framtíðar Jóhanna Hlín Auðunsdóttir Skoðun Við getum ekki firrt okkur ábyrgð Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Læra nemendur meira ef skóladögum fjölgar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórn útúrsnúninga? Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Fjármálaáætlun - satíriskt leikrit í óteljandi þáttum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hálfsannleikur og ósannindi Magnúsar Árna Skjaldar Magnússonar Hjörvar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun „Dagsskipun kerfisins“ Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Er ekki komið nóg af þessum mannréttindum? Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Ertu íslenskuvinur? Védís Ragnheiðardóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn útúrsnúninga? Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Við getum ekki firrt okkur ábyrgð Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Samfella í verki - Framtíðarsýn Okkar Hveragerðis Sandra Lind Brynjarsdóttir,Jónas Guðnason ,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Virðingaleysi í samfélaginu Marta Wieczorek skrifar Skoðun Ertu Jón eða séra Jón? Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Læra nemendur meira ef skóladögum fjölgar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ísland í Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Ógnir núna ekkert á við áhættu framtíðar Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til Ingu Sæland skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki um val milli lífs og dauða heldur um það hvernig við hlúum að fólki í lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fjármálaáætlun - satíriskt leikrit í óteljandi þáttum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hálfsannleikur og ósannindi Magnúsar Árna Skjaldar Magnússonar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Píslargangan gleymd – og börnin bera afleiðingarnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trump, Íran, Úkraína og NATO Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Þöggun - Okkar Borg Sigfús Aðalsteinsson ,Baldur Borgþóirsson skrifar Skoðun Meira er ekki alltaf betra í skólastarfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Um Ketilsbraut 7-9 – Stjórnsýsluhús Norðurþings Rúnar Traustason skrifar Skoðun Frá hásæti orkudrottningar Kristín Linda Árnadóttir skrifar Skoðun Að hafna viðræðum er að hafna upplýsingum Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Einn mánuður af átökum: Börn gjalda mest fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Þau sem töluðu um hvalrekaskatt og hin sem þora að leggja hann á Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Mikið vona ég að þetta sé ekki rétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Veldur hver á heldur! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Gott samfélag verður ekki til af sjálfu sér Marta Rut Ólafsdóttir skrifar Skoðun Gerðir samningar sviknir af ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki byggt vernd barna á tilviljunum! Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ekki minn kaffibolli Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
„Sjálfstæðisflokkurinn fjármagnar kosningaloforð Samfylkingarinnar“ er blaðagrein eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, sem birt var í Morgunblaðinu 28. september 2019. Núna, tæpum átta árum síðar, hafa margir spádómar Sigmundar ræst: „Borgarlínan ber öll merki innviðaverkefnis sem mun reynast eilífðarvandamál, kostnaðurinn verður margfalt meiri en lagt er upp með, árangurinn mun lakari en gert er ráð fyrir og rekstrarkostnaðurinn eilífðarvandamál fyrir skattgreiðendur.“ „Fleira fólk verður ráðið í verkefnið, fleiri einstaklingar og stofnanir munu hafa hag af því að það haldi áfram og kerfisræðið mun ráða för. Haldið verður áfram á sömu braut, á sömu teinum á sömu línu.“ Spádómur þáverandi borgarstjóra í maí 2022 Í Fréttablaðinu sáluga, degi fyrir kjördag borgarstjórnarkosninga í maí 2022, skrifaði þáverandi borgarstjóri Samfylkingarinnar: „Á næsta kjörtímabili mun Borgarlínan komast til framkvæmda og Miklabraut fer í stokk – ef núverandi stefna heldur áfram. Annars verður stórt stopp, og umferðin, umhverfið og loftslagsmálin líða fyrir.“ Ekkert af þessu hefur staðist, þótt sami meirihluti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, með nýjum fylgihnöttum, hafi reynt eins og rjúpan við staurinn að fylgja eftir sömu stefnunni um borgarlínuna á yfirstandandi kjörtímabili. Ábendingar Vegagerðarinnar frá september 2024 Í byrjun september 2024 gaf Vegagerðin út fréttatilkynningu sem ber heitið „Virðum staðreyndir varðandi Samgöngusáttmálann“. Þessi tilkynning lýsir vinnubrögðunum við gerð Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í september 2019 og að Vegagerðin hafi ekki komið nálægt því verklagi. Með þessu vildi Vegagerðin, réttilega, firra sig ábyrgð. Stofnunin var þó óbeint með tilkynningunni að staðfesta að bæði framkvæmdahraði og framkvæmdakostnaður Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins hafi í upphafi verið stórkostlega vanáætlaður. Vinnubrögðin við gerð sáttmálans haustið 2019 voru því til þess fallin að blekkja almenning. Blekkingarleiknum ber að linna Miðflokkurinn hefur ávallt staðið gegn þeim blekkingarleik sem fylgt hefur borgarlínuverkefninu. Sem fyrr mun flokkurinn núna í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna berjast fyrir því að komast undan „Dagsskipun kerfisins“, svo notuð séu lokaorð í áðurnefndri grein Sigmundar Davíðs frá lok september 2019. Hendum ekki góðum peningum á eftir slæmum. Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Skoðun Ríkisstjórn útúrsnúninga? Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Samfella í verki - Framtíðarsýn Okkar Hveragerðis Sandra Lind Brynjarsdóttir,Jónas Guðnason ,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki um val milli lífs og dauða heldur um það hvernig við hlúum að fólki í lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Einn mánuður af átökum: Börn gjalda mest fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Þau sem töluðu um hvalrekaskatt og hin sem þora að leggja hann á Þórður Snær Júlíusson skrifar