Fjögur mörk í þremur landsleikjum með fyrirliðabandið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2026 22:28 Orri Steinn Óskarsson fagnar öðru tveggja marka sinna í gær. Getty/Vaughn Ridley Orri Steinn Óskarsson hefur heldur betur blómstrað með íslenska landsliðinu síðan Arnar Gunnlaugsson gerði hann að aðalfyrirliða íslenska landsliðsins.
Orri hefur reyndar misst af mörgum leikjum vegna meiðsla en var mættur aftur með stæl í gær þegar íslenska liðið gerði 2-2 jafntefli við HM-gestgjafa Kanada.Orri skoraði tvö mörk á fyrstu 22 mínútunum, bæði með hásklassa framherjaafgreiðslum. Hann er enn 21 árs gamall en er þegar kominn með níu mörk í fyrstu sautján landsleikjum sínum.Orri skoraði einnig í tveimur fyrstu landsleikjum sínum eftir að Arnar setti á hann fyrirliðabandið. Hann hefur því skorað fjögur mörk í þremur landsleikjum með fyrirliðabandið. Orri skoraði í báðum leikjunum við Kosovo í mars í fyrra. Hann jafnaði metin í 1-1 í 2-1 tapi í fyrri leiknum og kom íslenska liðinu síðan í 1-0 í 3-1 tapi í seinni leiknum en báðir voru þeir leikir í umspili Þjóðadeildarinnar.Orri er að byrja alla þessa leiki mjög vel en öll mörkin fjögur hafa komið á fyrstu 22 mínútum leikjanna. Hann skoraði á 2. mínútu í öðrum Kósóvóleiknum og á 22. mínútu í hinum.Mörkin á móti Kanada komu síðan bæði í upphafi leiks eða á 9. og 22. mínútu. Það er eins gott fyrir mótherja íslenska landsliðsins að missa ekki augun af Orra á fyrstu 25 mínútum leikjanna.Orri spilaði í 67 mínútur í leiknum á móti Kanada og í 90 og 65 mínútum í leikjunum á móti Kosovo. Þessi fjögur mörk hafa því komið á bara 222 mínútum sem þýðir að mark á 55,5 mínútna fresti.Orri skoraði þrjú mörk í fyrstu ellefu landsleikjum sínum en hefur síðan skorað sex mörk í síðustu sex. Eini leikurinn sem hann hefur ekki komist á blað í þessum síðustu sex var þegar hann fór meiddur af velli eftir aðeins 25 mínútur á móti Wales.
Landslið karla í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira