Veldur hver á heldur! Andrés Pétursson skrifar 28. mars 2026 07:02 Mikill niðurskurður á makrílkvóta Íra hefur verið uppspretta mikillar Þórðargleði hjá Nei-sinnum á Íslandi að undanförnu. Þar með telja þeir sig fá enn eina staðfestingu á einbreyttum brotavilja Brusselvaldsins gagnvart smáþjóðum. Veikleiki þessarar röksemdafærslu liggur hins vegar í að það skiptir máli hvernig samninga viðkomandi þjóðir gera við inngöngu í Evrópusambandið. Írar skilgreindu ekki sjávarútveg sem þjóðhagslega mikilvæga atvinnugrein við inngöngu í ESB árið 1973 en treystu á hin svokölluðu Haag-viðmið aðildarríkjanna. Þau eru hins vegar ekki hluti af frumrétti Evrópusambandsins og hægt að breyta með meirihluta atkvæða. Það er því grundvallarskilyrði ef Ísland gerir samning við Evrópusambandið að þetta sé skýrt í aðildarsamningi. Því ef þessi mál eru bundin aðildarsamningi Íslands þá er ekki hægt að breyta því nema með samþykki allra aðildarríkjanna- þar með talið Íslands. Þetta eiga andstæðingar Evrópusambandsins á Íslandi erfitt með að viðurkenna og þyrla upp alls konar moðreyk til að dylja þessa staðreynd. Þetta kemur meðal annars fram í grein Ernu Bjarnadóttur hagfræðings hér á þessum vettvangi. Þar vandar hún mér ekki kveðjurnar og kallar skrif mín furðuleg. Slík orðræða bætir litlu við efnislega umræðu. Það er rétt hjá henni að ákvörðun um niðurskurð makrílkvóta var tekin innan ramma Evrópusambandsins og að þar gilda reglur um meirihlutaákvarðanir. En það breytir ekki meginatriðinu sem ég benti á: ástæðan fyrir niðurskurðinum er líffræðileg staða stofnsins, ekki pólitískur ásetningur gegn Írlandi. Í umræðunni skiptir máli að halda tveimur hlutum aðskildum. Annars vegar er það mat vísindamanna á stöðu makrílstofnsins og nauðsyn þess að draga úr veiðum. Hins vegar er það hvernig þeim niðurskurði er skipt milli ríkja. Erna beinir sjónum sínum að seinna atriðinu, en mín umfjöllun snerist fyrst og fremst að hinu fyrra – og því hvernig sú staða hefur verið túlkuð í íslenskri umræðu. Hins vegar skil ég hvernig Erna fær út að ég sé að gera lítið úr írskum sjávarútvegi. Ég segi í grein minni. ,, Það má alls ekki gera lítið úr óánægju írskra sjómanna – hún er raunveruleg og byggð á verulegum efnahagslegum áhrifum á ákveðnum landsvæðum.“ Ég benti einfaldlega á efnahagslegt vægi írsk sjávarútvegs í samanburði við Ísland. Á meðan sjávarútvegur er burðarás í íslensku efnahagslífi, gegnir hann mun minna hlutverki í þjóðarbúskap Írlands. Það skiptir máli þegar dregnar eru ályktanir um hvaða lærdóm megi draga af reynslu ríkjanna. Umræðan ætti því ekki að snúast um einfaldar upphrópanir, heldur um raunhæft mat á því hvernig slíkt kerfi virkar – og hvað það þýðir fyrir land eins og Ísland. En þarna veldur hver á heldur og mikilvægt að samninganefnd Íslendinga haldi vel á málum ef farið verður í samningaviðræður við Evrópusambandið. Höfundur er með M.Sc. gráðu í Evrópufræðum frá London School of Economics og hefur yfir 30 ára reynslu af ýmsum Evrópuverkefnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Andrés Pétursson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar