„Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Smári Jökull Jónsson skrifar 4. apríl 2026 12:22 Telma Sigtryggsdóttir er formaður heilbrigðishóps ÖBÍ. Formaður heilbrigðishóps Öryrkjabandalagsins segir að gera þurfi betur í að hlusta á konur sem leiti aðstoðar í heilbrigðiskerfinu. Líkamleg einkenni séu oftar en ekki fyrst talin tengjast þunglyndi eða kvíða og þá skorti rannsóknir sem miðaðar séu að konum.
Á dögunum fór fram málþing á vegum ÖBÍ og Háskóla Íslands um langvinn veikindi kvenna. Á málþinginu héldu hagsmunasamtök kvenna og kvára, sem glíma við langvinn veikindi, erindi og greindu frá reynslu sinni. Formaður heilbrigðishóps ÖBÍ segir konur mæta skilningsleysi í heilbrigðiskerfinu. Fyrstu viðbrögð þegar þær leiti þangað séu oft að þær glími við kvíða eða þunglyndi. „Það getur alveg verið eitthvað sem fylgir með seinna en það er ekki hægt að taka á verkjum og alls konar öðrum einkennum með því að setja fólk á kvíða- og þunglyndislyf. Það virðist vera það sem þær eru að upplifa að þetta sé sett undir geðhattinn,“ segir Telma Sigtryggsdóttir sem hélt erindi á málþinginu. Meðferðir og lyfjagjöf út frá rannsóknum á körlum Þá sé ekki verið að gera sérhæfðar rannsóknir varðandi langvinn veikinda kvenna heldur séu flestar rannsóknir gerðar út frá líkömum karla. „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama og þá er verið að yfirfæra rannsóknir sem búið er að gera á karllíkama, meðferðir, lyf og greiningar og allt það út frá karllíkama. Þetta þarf að skoða betur.“ „Það er eitthvað að ef kona er mikið verkjuð“ Það sé heimslægt vandamál að rannsóknir skorti á langvinnum veikindum kvenna, þau hafi ekki fengið athygli og rannsóknir skorti fjármagn. Milljónir kvenna gangi á milli lækna árum saman í leit að svörum. „Það þarf að gera svo miklu meira í að hlusta á einkenni kvenna og hlusta á konur og ekki bara vera að færa þær hingað og þangað og fá heildstæða mynd. Hvað er í gangi? Það er eitthvað að ef kona er mikið verkjuð og það er ekki allt bara huglægt,“ bætir Telma við.
Heilbrigðismál Kvenheilsa Málefni fatlaðs fólks Jafnréttismál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sjá meira