Bókasafnið mitt - Heimili að heiman Lísa Z. Valdimarsdóttir skrifar 27. mars 2026 12:45 Bókasafnið mitt er fullt alla daga. Fleiri og fleiri sækja almenningsbókasöfn landsins og sýna gestatölur að þörfin fyrir almenningsbókasöfn hefur aldrei verið jafn mikil. Bókasafnið mitt skiptir máli fyrir íbúa. Samfélagið í heild þarf almenningsbókasöfn. Þau skila margföldum ágóða til samfélagsins og sveitarfélagsins alls sem ekki mælist í krónutölum, heldur m.a. í auðugu mannlífi, bættri lýðheilsu og upplýstu samfélagi. Bókasafnið mitt er samfélagsþjónusta og eina rými bæjarins sem fólk getur komið inn á án þess að þurfa að finna sig knúið til að taka upp veskið. Að við bæjarbúar höfum rými þar sem þetta er mögulegt og við getum boðið íbúum um allt land „sitt“ rými til notkunar án endurgjalds er mikilvægt. Bókasafnið mitt er menningarmiðstöð og félagsmiðstöð íbúa, það er hlutlaus staður þar sem fólk getur nálgast bæði upplýsingar og afþreyingu og er rými sem fólk sækir í til að hitta vini eða koma með fjölskylduna. Þessi þróun er orðin mjög áberandi á Norðurlöndunum og er Ísland enginn eftirbátur þar. Á almenningsbókasöfnunum leggjum við mikla áhersla á að gestum líði vel á safninu og að það sé þriðji áfangastaður fólks – Heimili að heiman. Bókasafnið mitt er samfélagslegt vin hvers sveitarfélags, það stuðlar að lýðheilsu, eykur lífsgæði og er stuðningur og félagslegt net einstæðinga, fólks sem er utangarðs og fólks sem þarfnast félagslegra tengsla. Fólks sem mögulega fer hvergi annað yfir daginn. Við viljum hlúa að fólkinu okkar og lögð er áhersla á persónulega þjónustu til allra. Bókasafnið mitt skipar stóran sess í inngildingu nýrra íbúa og aðlögun þeirra að íslensku samfélagi. Það eru sjálfsögð mannréttindi að hafa aðgang að „sínu“ almenningsbókasafni. Öll eru velkomin á almenningsbókasöfnin burtséð frá kyni, þjóðerni, stétt eða stöðu og höfum við söfnin lagt áherslu á þennan þátt í allri okkar starfsemi í mörg ár. Bókasafnið mitt á stóran þátt í lestri barna og ungmenna og stuðlar að læsi í allri grunnstarfsemi sinni. Almenningsbókasöfnin bregðast ekki skyldum sínum varðandi læsi og lestur, sérstaklega er þetta mikilvægt í umræðunni um læsi barna og ungmenna. Söfnin reyna eftir bestu getu og fjármagni að bjóða fjölbreytt úrval bóka sem höfðað gætu til sem flestra, en því miður miðast úrvalið við það sem gefið er út. Til þess að auka úrvalið þarf að setja meira fjármagn í skrif á barna- og ungmennabókum. Við megum ekki gleyma því að almenningsbókasöfn eru til þess að þjóna og hlúa að samfélaginu, þau auka lífsgæði og eru sjálfsögð mannréttindi. Bókasafnið mitt er fyrir íbúa og ég veit að starfsfólkið á bókasafninu mínu er þakklátt í lok í dags - það veit að það skiptir máli fyrir þá gesti sem koma á safnið. Takk starfsfólk almenningsbókasafna, án ykkar færi enginn á bókasafnið sitt. Velkomin öll á almenningsbókasöfn landsins – átt þú þitt bókasafn sem þú heimsækir? Höfundur er forstöðumaður Bókasafns Kópavogs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókasöfn Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar