Átti að taka víti fyrir Heimi en missti meðvitund Sindri Sverrisson skrifar 27. mars 2026 14:17 Heimir Hallgrímsson var fyrstur til að huga að Sammie Szmodics þegar ljóst var að eitthvað alvarlegt hefði gerst. Getty/Stephen McCarthy Sammie Szmodics, miðjumaður írska landsliðsins í fótbolta, er á batavegi eftir að hafa verið fluttur á sjúkrahús í gærkvöld vegna áreksturs við leikmann Tékka, í HM-umspilinu í Prag.
Heimir Hallgrímsson hafði sent Szmodics inná völlinn þegar aðeins fimm mínútur voru eftir af framlengingu, með það í huga að hann tæki víti í vítaspyrnukeppninni sem Írar töpuðu svo. Szmodics meiddist hins vegar á höfði eftir árekstur við Stephan Chaloupek, og lá eftir á vellinum meðvitundarlaus. Þetta gerðist fyrir framan Heimi sem var fyrstur til að hlaupa að Szmodics og huga að honum. Derby attacker Sammie Szmodics was knocked unconscious in Ireland's World Cup qualifier defeat to Czechia yesterday. Not even a yellow card, this. Honking decision. pic.twitter.com/0ogrWqq0bq— Second Tier podcast (@secondtierpod) March 27, 2026 Sjúkrateymi írska liðsins brást líka skjótt við og var hlé á leiknum í nokkrar mínútur á meðan að hlúð var að honum. „Sammy var meðvitundarlaus á vellinum en við erum með góða lækna og þeir sáu vel um hann á grasinu,“ sagði Heimir á blaðamannafundi eftir leik. „Hann er kominn til meðvitundar. Það er bara verið að gera próf og skoða hann en vonandi flýgur hann með okkur heim til Írlands á föstudag,“ sagði Heimir í gærkvöld. Talsmaður írska knattspyrnusambandsins staðfesti svo að Szmodics hefði í dag verið útskrifaður af sjúkrahúsinu og myndi í kjölfarið jafna sig undir eftirliti sjúkrateymis írska liðsins og Derby County. Heimir var spurður að því sérstaklega hvort að Szmodics hefði verið skipt inn á til að taka víti í vítakeppninni og játti því. „Við vorum með lista tilbúinn. Sammie var eitt af sex nöfnum,“ sagði Heimir.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Tengdar fréttir „Tannlæknirinn hefur fengið sinn séns og nú verður hann að fara“ Eamon Dunphy, fyrrverandi landsliðsmaður Írlands og opinber andstæðingur Heimis Hallgrímssonar hefur endanlega fengið nóg af Eyjamanninum eftir að HM draumur Íra varð að engu í gær. Hann vill að Heimir verði rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Írlands, ekki í fyrsta skipti sem hann lætur það út úr sér. 27. mars 2026 10:02 HM-ævintýrið búið hjá Heimi HM-draumur Íra er úti eftir 4-3 tap á móti Tékkum í vítakeppni í undanúrslitum umspilsins um laus sæti á HM í fótbolta í sumar. 26. mars 2026 22:39 Nudda Heimi upp úr ummælum hans eftir tapið sára HM-draumur Írlands og Heimis Hallgrímssonar er úti eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Tékklandi í Prag í gærkvöld. Einn stærsti íþróttamiðill heims rifjaði þá upp ummæli Heimis í aðdraganda leiksins. 27. mars 2026 08:30 Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Golf Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsti sigurinn í áttatíu daga í fyrsta leik Fanneyjar Ingu „Dásamleg manneskja með risastórt hjarta“ Víkingur - Þór/KA | Norðankonur heimsækja botnliðið Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Eyjaálfa, fyrir utan Nýja-Sjáland, styður Infantino Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ „Ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa“ Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Stefndi í endurkomu en Siggi Raggi og lærisveinar eru úr leik Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Gísli Gottskálk meiddist illa á æfingu fyrir fyrsta leikinn Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Elvis kominn í Bítlabæinn Sjá meira
„Tannlæknirinn hefur fengið sinn séns og nú verður hann að fara“ Eamon Dunphy, fyrrverandi landsliðsmaður Írlands og opinber andstæðingur Heimis Hallgrímssonar hefur endanlega fengið nóg af Eyjamanninum eftir að HM draumur Íra varð að engu í gær. Hann vill að Heimir verði rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Írlands, ekki í fyrsta skipti sem hann lætur það út úr sér. 27. mars 2026 10:02
HM-ævintýrið búið hjá Heimi HM-draumur Íra er úti eftir 4-3 tap á móti Tékkum í vítakeppni í undanúrslitum umspilsins um laus sæti á HM í fótbolta í sumar. 26. mars 2026 22:39
Nudda Heimi upp úr ummælum hans eftir tapið sára HM-draumur Írlands og Heimis Hallgrímssonar er úti eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Tékklandi í Prag í gærkvöld. Einn stærsti íþróttamiðill heims rifjaði þá upp ummæli Heimis í aðdraganda leiksins. 27. mars 2026 08:30