Sameinuð stöndum vér hræsnarar Íslands Páll Steingrímsson skrifar 26. mars 2026 18:16 Það er kostulegt að fylgjast með umræðunni um fréttaskrif Morgunblaðsins um heima Reykjavíkur þessa dagana. Eftir að lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu sem er reyndar loðin í alla enda og ber með sér að ekki séu öll kurl komin til grafar, sem sést best á að krafist er gæsluvarðhalds yfir sumum sakborningunum, sem ber með sér alvarleika málsins og dregur um leið úr trúverðugleika yfirlýsingarinnar. Svo vill til að mig rekur glöggt minni til máls þar sem viðkomandi var fluttur með sjúkraflugi svo hægt væri að bjarga lífi hans og fyrsta yfirheyrsla var 5 mánuðum síðar. Þar var ekki krafist gæsluvarðhalds. Það hafði kannski eitthvað með það að gera að yfirlögregluþjónn, sem kom að rannsókninni, taldi málið tengjast ákveðnu fyrirtæki í þeim bæ er atburðurinn átti sér stað í og væri því ekki forgangsmál að rannsaka. En þessi yfirlýsing lögreglu varð samt til þess að helstu hræsnarar landsins fá tækfæri til að svala sínum lægstu hvötum við lyklaborðið. Það kom mér reyndar ekki á óvart hversu stór hluti þeirra sem gagnrýna Morgunblaðið vegna þessara fréttaskrifa tengjast Heimildinni og Samfylkingunni, sem er eiginlega kostulegt því þessi sami hópur hefur nú einmitt klappað fyrir blaðamönnum sem hafa fengið verðlaun fyrir einmitt þessi vinnubrögð sem þeir telja sig vera að gagnrýna hjá Morgunblaðinu. Þar er ég að visa til umfjöllunar um svokallaða „Skæruliðadeild Samherja“ sem er bara hugarfóstur þeirra er fengu blaðamannaverðlaun fyrir. Enginn er átti aðild að þeim fréttasmíðum hefur þorað að mæta mér til að ræða þær fréttasmíðar sem segir nú mest um á hversu veikum grunni þær standa. Og sumir af þeim hóp er nú flagga þessari yfirlýsingu lögreglunnar, voru nú ekki beint sáttir við yfirlýsingu lögreglu í máli er tengdist því að trúarbræður þessa költs er nú fer mikinn á samfélagsmiðlunum voru með stöðu sakbornings, þá lá lögreglan undir gagnrýni fyrir að senda frá sér yfirlýsingu um áætluð brot. Og við skulum ekki gleyma þingmanninum Sigmundi Erni Rúnarssyni, samflokksmanni Þýska stálsins Þórðar Snæs, sem er einn af þeim sem hafa fengið blaðamannaverðlaun með lítilli innistæðu. Það er fróðlegt að bera saman orð þingmannsins Sigmundar Ernis úr ræðustól Alþingis vegna fréttar Morgunblaðsins. Í fyrirsögninni kemur fram innihaldið og er lýsandi fyrir álit hans: „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg,“ segir hann nú en fyrir rúmu ári sagði þessi sami Sigmundur Ernir: „Það er ekki góður bragur á því að alþingismenn fari að rannsaka störf fjölmiðla. Þeir eiga að láta fjölmiðla í friði og það eru aðrir til þess bærir aðilar sem eiga að athuga hvort að fjölmiðlar fari eftir siðareglum og þar er siðanefnd Blaðamannafélags Íslands mjög virk, eðlilega.“ Ef málið yrði rannsakað væri um pólitíska ákvörðun að ræða að mati Sigmundar Ernis sem skapi slæmt fordæmi. Að mati Sigmundar Ernis er það ekki hættuleg fréttamennska að byrla manni til að komast í hans persónulegu gögn, nei það er hættulegt að bendla menn við ofbeldi og hryðjuverkasamtök.. Má þá ekki í dag draga sömu ályktun af orðum Sigmundar Ernis í garð Morgunblaðsins, að þarna sé um pólitíska aðför að ræða? Að hann sé að höggva til Morgunblaðsins vegna afhjúpunar Spursmála í aðdraganda síðustu alþingiskosninga á samflokksmanni Sigmundar Ernis kvenhataranum og netníðingnum Þýska stálinu Þórði Snæ, en sú afhjúpun hefur orsakað það að meðlimir núverandi ríkisstjórnar skjálfa á beinunum og þora ekki í viðtal hjá Stefáni Einari. Og mun þá beiðni mín Sigmundur Ernir um að Stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis rannsaki vinnubrögð RÚV verða hafnað á pólitískum forsendum? Maður gæti freistast til að draga þá ályktun út frá orðum þínum og gjörðum Sigmundur Ernir, þar sem tveir af þeim er fengu sakborningsstöðu í því máli eru nú starfsmenn þingflokks Sigmundar Ernis allavega tel ég auðvelt að draga þá ályktun í dag út frá orðum þínum og gjörðum. Og ég tel að fái þessi beiðni mín um að Stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis rannsaki RÚV ekki brautargengi, þá er augljóst að sú neitun byggir á pólitískum afskiptum vegna tengsla fyrrum sakborninga við þingflokk Samfylkingarinnar. Ég vænti þess að það sé ekki sú ályktun sem þingmaðurinn vill að verði dregin, fái málið ekki brautargengi, því þá ber sú neitun augljósa merkingu um spillingu. Höfundur er skipstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páll Steingrímsson Fjölmiðlar Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar