Er ferðaþjónustan virðiskeðjan sem byggir upp Ísland? Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar 26. mars 2026 15:31 Það er oft talað um ferðaþjónustu eins og hún sé einangruð atvinnugrein sem fyrst og fremst skipti máli fyrir þá sem starfa beint innan hennar. Sú mynd er einfaldlega röng. Ferðaþjónustan er mikilvægur hlekkur í virðiskeðjunni sem heldur uppi verðmætasköpun, þjónustu og lífsgæðum víða um land. Hún skiptir ekki bara máli fyrir hótel, veitingastaði eða afþreyingarfyrirtæki, heldur fyrir samfélagið allt. Frá árinu 2017 hefur fjöldi ferðamanna til Íslands í meginatriðum staðið í stað. Á sama tíma hefur þó margt breyst. Innviðir hafa verið byggðir upp, gistirými hefur aukist, afþreying orðið fjölbreyttari og veitingastaðir fleiri og betri. Það sem við sjáum því í dag er ekki einfaldlega stærri atvinnugrein, heldur þroskaðra og sterkara vistkerfi sem hefur burði til að skila enn meiri verðmætum en áður. Þegar ferðamaður kemur til landsins kaupir hann ekki bara flug og gistingu. Hann borðar á veitingastöðum, fer í afþreyingu, notar samgöngur, verslar vörur og nýtir þjónustu af ýmsu tagi. Hann styður þannig við fjölmargar atvinnugreinar, bæði beint og óbeint. Ferðaþjónustan tengist matvælaframleiðslu, hönnun, tækni, menningu, mannvirkjagerð og smásölu, svo fátt eitt sé nefnt. Hún er hluti af stærra vistkerfi þar sem margir njóta góðs af, hvort sem þeir starfa innan greinarinnar eða utan hennar. Klasakort Íslenska Ferðaklasans sýnir skýrt hvernig ferðaþjónustan dreifir sér um allt samfélagið. Klasakort ferðaþjónustunnar, sem sýnir hversu víða virðissköpunin teygir sig. Þetta skiptir máli þegar rætt er um framtíð ferðaþjónustu á Íslandi. Umræðan snýst of oft um fjölda ferðamanna og álag á vinsæla staði, en mun sjaldnar um það hvernig greinin getur styrkt byggðir, aukið þjónustustig og skapað fleiri góð störf um allt land. Þar þurfum við að horfa stærra. Á síðustu árum hefur fjölbreytni í afþreyingu aukist verulega. Ný böð hafa risið, ný upplifunartengd verkefni orðið til, veitingastaðir orðið metnaðarfyllri og fagmennska aukist í allri þjónustu. Þetta hefur ekki aðeins bætt upplifun gesta heldur líka aukið valmöguleika og lífsgæði fyrir okkur sem hér búum. Við sjáum það víða að uppbygging fyrir ferðamenn nýtist líka heimamönnum, bæði í daglegu lífi og í auknum tækifærum til atvinnu og þjónustu. Næsta stóra verkefni ferðaþjónustunnar snýst því ekki fyrst og fremst um að fjölga ferðamönnum. Það snýst um að nýta betur þá uppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað. Það snýst um meiri gæði, betri dreifingu og sterkari rekstrargrundvöll. Þar er lykilatriði að ferðamenn heimsæki fleiri svæði og komi til landsins yfir stærri hluta ársins. Allt Ísland, allt árið, á ekki að vera slagorð eitt og sér. Það á að vera leiðarljós. Ein skýrasta vísbendingin um þetta tækifæri er nýting gistirýmis. Á höfuðborgarsvæðinu hefur nýting yfir vetrarmánuðina verið tiltölulega sterk, en víða annars staðar á landinu er enn mikið svigrúm til vaxtar. Þar liggur stórt sóknarfæri. Með meiri dreifingu og minni árstíðasveiflu getum við skapað meiri stöðugleika í rekstri, fleiri heilsársstörf og sterkari grunn fyrir byggðir um land allt. Ferðaþjónustan er atvinnugrein landsbyggðarinnar. Þegar árstíðasveiflan minnkar verða störfin líka betri. Það skapast meira svigrúm til að byggja upp færni, halda í fólk, efla þjónustu og fjárfesta í gæðum. Þannig getur ferðaþjónustan orðið enn sterkari stoð undir fjölbreytt og áhugavert atvinnulíf, ekki síst utan stærstu þéttbýliskjarnanna. Þá eigum við líka vannýtt tækifæri í vetrarferðaþjónustu. Norðurljósin eru öflugt aðdráttarafl, en Ísland hefur einnig alla burði til að byggja upp rólegri, dýpri og verðmætari vetrarupplifun. Þar falla heilsudvöl, kyrrð, náttúra og workcation-hugmyndin afar vel að því sem margir ferðamenn leita að í dag. Fólk vill ekki bara sjá sem mest á sem skemmstum tíma. Margir vilja frið, endurhleðslu, sveigjanleika og gæði. Þar hefur Ísland raunverulega sérstöðu. Við þurfum því að tala um ferðaþjónustu af meiri dýpt og meiri sanngirni. Hún er ekki bara tekjulind fyrir einstök fyrirtæki. Hún er hluti af þeirri virðiskeðju sem styður við fjölbreytt atvinnulíf, meiri þjónustu, aukið framboð og sterkari lífsgæði um allt land. Ferðaþjónustan hefur þegar hjálpað til við að byggja upp betra og fjölbreyttara Ísland. Næsta skref ætti að vera skýrt: meiri dreifing, minni árstíðasveifla, fleiri heilsársstörf, meiri gæði og sterkari upplifun. Um allt land, allt árið. Höfundur er formaður afþreyingarnefndar Samtaka ferðaþjónustunnar og hefur starfað innan ferðaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar