NFL-goðsögnin gaf Heimi góð ráð Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2026 16:30 Bill Belichick hefur marga fjöruna sopið sem þjálfari og gæti kannski hjálpað Heimi þó að Eyjamaðurinn viti margfalt meira um venjulegan fótbolta. Samsett/Getty NFL-þjálfaragoðsögnin Bill Belichick viðurkennir að hann hafi ekki hundsvit á fótbolta en var engu að síður með góð ráð fyrir Heimi Hallgrímsson og írska landsliðið fyrir komandi umspil um HM-sæti.
Heimir kom Írum í umspilið með ævintýralegum sigrum gegn Portúgal og Ungverjalandi í nóvember. Nú þurfa þeir að vinna Tékka í Prag á morgun og svo heimaleik við Danmörku eða Norður-Makedóníu 31. mars, til að komast á HM í fyrsta sinn frá árinu 2002. Eftirvæntingin er mikil á Írlandi og á meðal þeirra sem hafa verið fengnir til að tjá sig um umspilið er Bill Belichick sem unnið hefur átta Ofurskálarmeistaratitla á ferlinum. „Þeir eru augljóslega með mjög gott lið fyrst þeir hafa náð svona langt og þá þurfa menn bara að treysta á það sem hefur skilað þeim í þessa stöðu,“ sagði Belichick á blaðamannafundi. Tilefni fundarins var tilkynning um að háskólalið North Carolina, sem þessi 74 ára gamla goðsögn þjálfar, yrði með í árlegum leik bandarískra háskólaliða í Dublin í ágúst. Legendary NFL coach has simple message for Ireland team ahead of World Cup play-off https://t.co/Ny0jpjGQab pic.twitter.com/2TRZdLjrzA— Irish Mirror Sport (@MirrorSportIE) March 25, 2026 Belichick hvatti Íra til að halda sig við það sem þeir hefðu verið að gera í undanförnum leikjum og treysta ferlinu. Aðspurður hvað Heimir gæti gert til þess að gera leikmenn sína klára svaraði hann: „Það sem ég hef alltaf gert er að skapa aðstæður á æfingum sem eru erfiðari en í leikjum. Hlutir sem við glímum við í okkar íþrótt, eins og klukkan, hávaði í áhorfendum og fleira. Ég reyni alltaf að gera liðinu mínu eins erfitt fyrir og hægt er svo að þau ráði við þessar aðstæður þegar þær koma upp. Ég trúi því að ef þú æfir þig í að gera erfiða hluti þá ráðir þú við þá þegar að því kemur. Ef þú undirbýrð þig ekki þá gætir þú frekar hugsað með þér: „Ég veit ekki hvort ég ræð við þetta.““
NFL Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands HM 2026 í fótbolta Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Var launahæstur í sögunni í tvo daga Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Sjá meira