Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um Icewear 26. mars 2026 09:06 Ullarvörur Icewear eru OEKO-TEX® STANDARD 100 vottaðar og henta einstaklega vel í íslenska vorið. Í textíliðnaðinum hefur umræðan snúist að því að uppfylla lágmarkskröfur reglugerða. Hjá Icewear hefur hins vegar verið tekin skýr ákvörðun um að ganga lengra og setja öryggi neytenda í forgang.
Fyrirtækið hefur innleitt OEKO-TEX® STANDARD 100 vottun sem felur í sér að vörurnar hafa staðist prófanir hjá þriðja aðila sem tryggir að vörurnar innihalda ekki skaðleg né óæskileg efni fyrir okkur og umhverfið. Kröfurnar sem gerðar eru til vörunnar eru þar af leiðandi strangari en gildandi reglugerðir kveða á um. Langjökull herrajakki er fóðraður með íslenskri ull og OEKO-TEX® STANDARD 100 vottaður. Vottun sem nær til allra smáatriða OEKO-TEX® STANDARD 100 vottunin er mikilvægur gæðastaðall sem setur heilsu og öryggi neytenda í forgang með ítarlegum prófunum. Með því að skoða yfir 350 mismunandi efni tryggir vottunin að vörur séu lausar við skaðleg og óæskileg efni. Vatnsdalur regnkápan er hin fullkomna vorflík þar sem hún er létt, stílhrein og OEKO-TEX® STANDARD 100 vottuð. Meirihluti af vörulínu Icewear er OEKO-TEX® STANDARD 100 vottaður, þar má nefna skel- og regnfatnað, ullarfatnað, ullareinangrun, allt Icewear garn og Black Sheep útivistarlínan svo fátt eitt sé nefnt. Til þess að vörur hjá Icewear hljóti vottunina þarf hver einasti hluti þeirra að standast prófanir. Mælingarnar eiga þar af leiðandi ekki einungis við um efnið sjálft heldur einnig tvinna, fóður, prent og alla aukahluti, eins og tölur og rennilása. Allar gæðavottaðar Icewear vörur bera QR kóða sem viðskiptavinir geta skannað til að fá frekari upplýsingar um vottunina og gæðin á bak við vöruna. Þessari vegferð verður haldið áfram þar til allar vörur sem hægt er að gæðavotta hafa hlotið vottun. Black Sheep útivistarlínan er fyrsta íslenska útivistarlínan sem hlaut gæðavottunina. Strangt eftirlit frá þriðja aðila OEKO-TEX® STANDARD 100 vottunin kemur frá þriðja aðila en þá er átt við að hvorki Icewear né verksmiðjan sem framleiðir flíkurnar gefi sjálfum sér vottunina. Þess í stað fá óháðir sérfræðingar vöruna í hendurnar og mæla allt niður í minnstu smáatriði. „Þeir hafa enga hagsmuni af því að fegra hlutina fyrir okkur. Þetta er hlutlaust gagnrýnið auga sem gefur okkur þennan gæðastimpil og okkar leið til að sanna fyrir okkur og viðskiptavinum að gæðin séu byggð á staðreyndum en ekki bara á okkar eigin mati. Við viljum þar af leiðandi hvetja viðskiptavini okkar til þess að taka upplýsta ákvörðun þegar kemur að kaupum,“ segir Rakel Rut Ingibjargardóttir, yfirhönnuður hjá Icewear. Icewear býður upp á fjölbreytt úrval af vottuðum fatnaði fyrir börn. Út að leika í vottuðum fötum Icewear býður upp á fjölbreytt úrval af fatnaði fyrir börn sem bera OEKO-TEX® STANDARD 100 vottun, sem tryggir að efnin séu örugg og vönduð fyrir viðkvæma húð. Fötin eru hönnuð til að halda litlum kroppum hlýjum og þurrum í íslenskum veðurskilyrðum, svo að þau minnstu geti leikið sér úti óháð veðri.
Heilsa Tíska og hönnun Mest lesið Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið Hvað veistu um… IKEA? Lífið Vann að tveimur verðlaunabókum en fékk ekki boð á hátíðina Lífið Myndaveisla: Þjóðlegir Kvenskælingar dönsuðu og sungu Lífið Elskar að klæða sig upp fyrir jafnvel ekkert Tíska og hönnun Kúltúrhjón selja sjarmerandi eign í 101 Lífið Eignaðist fyrstu milljónina fimmtán ára og keypti íbúð átján ára Lífið Lítil prinsessa á leiðinni hjá Sóleyju Smáradóttur Lífið Gunnar Smári lagstur í sjúkrarúm Maríu Lilju Lífið Fleiri fréttir Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira