Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Agnar Már Másson skrifar 24. mars 2026 16:53 „Lýðræðið til sölu,“ ritaði Hornsleth á málverk sem hann verðsetur á fimmtán þúsund danskar krónur. Samsett Mynd Danskur listamaður hefur verið handtekinn eftir að hafa reynt að kaupa atkvæði á kjördag. Hann birti færslu þar sem hann bauð kjósendum þrjú hundruð þúsund króna málverk ef þeir greiddu atkvæði með Enhedslisten í þingkosningunum sem haldnar eru í dag.
Kristian von Hornsleth, sem er titlaður sem æsingalistamaður (d. provokunster) í dönskum fjölmiðlum, birti í dag myndskeið á Instagram þar sem hann bauð upp á málverk sem hann verðsetti á fimmtán þúsund danskar krónur (tæplega 300 þúsund íslenskar krónur). Danir ganga að kjörborðinu í dag í æsispennandi þingkosningum en listamaðurinn tók fram að þeir kjósendur sem greiddu atkvæði með Enhedslisten og færðu sönnur á það, með því að senda ljósmynd af sér með kjörseðlinum í gegnum vefsíðu listamannsins, myndu fá málverk eftir Hornleth sjálfan sem á stóð „Lýðræðið til sölu.“ Í samtali við Radio 4 í Danmörku sagði Hornleth í dag að 76 manns hefðu sent sér mynd af sér og kjörseðlinum. Útvarpsstöðin hefur enn fremur eftir lagaprófessor að gjörningurinn sé ólöglegur og refsiverður. Hornsleth gaf hinum lagalega þætti lítinn gaum þegar hann ræddi við Radio 4. „Auðvitað eru grá svæði en við lítum svo á að þetta sé listagjörningur sem lætur reyna á mörk samfélagsins,“ sagði Hornsleth, sem var skömmu síðar handtekinn og ákærður af lögreglunni. Lögreglan staðfestir handtökuna í samtali við TV2. Forsvarsmenn hins Enhedslisten, sem er svokallaður „rauðgrænn“ flokkur, segjast alls ekki sáttir. Peder Hvelplund þingmaður sagði við TV2 að þeir teldu málið grafalvarlegt en vildi þó lítið tjá sig um handtökuna. „Þetta er lögreglumál,“ sagði Hvelplund. „Ef þeir segja að þetta sé brot á hegningarlögum þá er það bara hluti af málinu og mat lögreglunnar.“
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira