Hafði ekki fundið guð á Hlíðarenda en las svo Biblíuna Aron Guðmundsson skrifar 24. mars 2026 13:02 Kasper Hogh, framherji Bodo/Glimt, sem var eitt sinn á mála hjá Val, fagnar marki sínu gegn Manchester City í Meistaradeildinni Vísir/Getty Danski landsliðsframerhjinn, Kasper Högh, fyrrverandi leikmaður Vals og nú einn heitasti framherji Evrópu fann Guð eftir mikla erfiðleika á sínum ferli. Hann vonast nú til þess að hjálpa Dönum að tryggja HM sæti.
Högh varð Íslandsmeistari með Valsmönnum haustið 2020 en tókst þá ekki að slá Patrick Pedersen út úr byrjunarliðinu og tókst heldur ekki að skora í fimm leikjum en fyrir komuna til Vals hafði hann verið að glíma við krefjandi meiðsli. Valsmenn urðu Íslandsmeistarar það haust þar sem Pedersen skoraði fimmtán mörk í sautján leikjum. Seinna á sínum ferli glímdi Högh við fleiri erfiðleika sem leikmaður AaB en nú er hann einn heitasti framherji Evrópu og sló í gegn með Bodö/Glimt í Meistaradeild Evrópu þar sem liðið komst alla leið í sextán liða úrslit. Nú á þessi litríki Dani möguleika á því að fara með þjóð sinni á HM en framundan er mikilvægur umspilsleikur gegn Norður-Makedóníu og svo mun sigurliðið þar mæta Írlandi eða Tékklandi í hreinum úrslitaleik um sæti á HM. Högh þakkar Guði fyrir það hvernig ræst hefur úr hans ferli þrátt fyrir mikla erfiðleika. „Ég fann Guð. Það er ástæðan fyrir því að ég sit hér í dag fyrir framan ykkur,“ sagði Högh á blaðamannafundi danska landsliðsins fyrr í dag. „Ég þakka Guði fyrir það.“ Högh segist fyrr á ferlinum hafa hugsað um allt annað en það sem var að gerast inn á fótboltavellinum. Hann hafi lært af mistökum sínum og í gegnum trú sína á Guði hafi hann fundið ró. „Þetta byrjaði allt með því að ég keypti Biblíuna, settist niður og reyndi að skilja. Fyrir mér snýst þetta um að vera góð manneskja með öllum þeim kostum og gildum sem því fylgja.“ Það er hins vegar ekki góði árangurinn innan vallar upp á síðkastið sem fær Högh til að trúa meira á æðri máttarvöld. „Trúin hefur ávallt reynst mér vel eftir að ég áttaði mig og skyldi hana fyllilega.“
HM 2026 í fótbolta Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Valur Íslenski boltinn Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Fleiri fréttir Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Hvernig á að leysa varnarleikinn? Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Mbappe ekki með á æfingu franska landsliðsins Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Sjá meira